Metingurinn heldur áfram!

Í dag var ég hrikalega heppin. Ég kláraði leðurverkefnið mitt, sem ég barði í BERMUDA eins og sönn kvennsa. Nei ég segi svona, en mér tókst að klára það verkefnið, en ekki nógu sátt með það.
Prófið gekk upp og ofan, frekar ósátt, og ég tek dönskuprófið á morgun, þó betur lærð undir það.

Eftir að ég byrjaði á þessum skemmtilega "lyfjakúri" sem læknirinn rálagði mér gegn beinhimnabólgunni hef ég verið frekar þreytt, þó ég viti ekki hvort það sé lyfjanna vegna eður eigi. Allavega er það mikið magn sem ég tek á dag, miðað við hvað ég hef tekið voða lítið af verkjatöflum og öðruskonar jukki. Ég held að fyrsta taflan sem ég tók hafi ég tekið 12 ára, reyndi oft að plata sjálfa mig að smygla sjóveikistöflum í eitthvað af góða matnum sem til var. En ég lét ekki plata mig svo auðveldlegaLoL!
Reyndar hef ég eins og margir aðrir fengið svokallaðan stíl í rassinn, þegar ég var lítil réttara sagt, en ég á eftir að komast að því hversvegna, ég man samt vel eftir þeim skiptum...Sick

Aftur á móti í stærðfræðitíma í dag gekk mér nokkuð vel bara get ég sagt, rétti af og til upp höndina í leit að hjálp. Drengurinn svonefndi var eitthvað móðursjúkur og leit af og til á mig með þessi spurnar augu ,, Á HVAÐA DÆMI ERT ÞÚ ?", ég held ég hafi litið eins og þessi Angry á hann til baka, því hann sneri sér svo fljótt við þegar ég leit upp.
Ég spurði hann í gamni eftir tímann á hvaða dæmi hann væri, ég fékk það staðfest að hann hafi verið kominn á 35 eða svo, og ég rétt á 30 svo ég muni. En auðvitað hélt ég því fram að hann væri sko barasta að svindla, þá gekk hann í burtu skömmustulegur, svo mín var örugglega að segja sannleikannLoL!

En annað mjög skemmtilegt atvik örugglega eitthvað tengt þessari þreytu.
Ég bað um að fá að fara á klósettið í seinasta tímanum, réttara sagt var ég að fara að snýta mér ( já ég er mannleg eins og við öll..) vegna kvefs og svona, rétt kom við nefið á mér að innan og þá fór að blæða. Svo þegar ég sá mér fært að fara að sækja pappír, beygði ég mig eins og maður á að gera, svo að blóðið myndi ekki leka á gólfið.
Þegar á því stóð var lófinn á mér mjög blóðugur og nefið á mér lak ótrúlega óhugnarlega mikið. Ég reddaði mér og fór síðan aftur inn í tíma, það vildi ekki stoppa svo ég fór tvívegis fram aftur til að redda þessu einhvern veginn. Að lokum stoppaði þessi vitleysa og bragðlaukarnir gerðu vart við sig.....Angry ojbarasta!

Nú verð ég að læra undir dönsku prófið!

KnúsHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Við erum hér að snýta okkur á sitthvoru landshorninu. Ég hef þó ekki fengið blóðnasir! Gangi þér vel í próflestrinum.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 21.5.2008 kl. 19:11

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Úff, meirað segja mamma líka í þeim hópi!
En takk takk
Var búin að glósa allt fyrir prófið, þar sem það átti að vera einhverntíman í seinustu viku, en ég fæ að taka það á morgun, hinir á föstudaginn... svona er að vera rauðhærð sko, ótrúlegt!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 21.5.2008 kl. 19:14

3 Smámynd: Garún

Vertu ekkert að læra dönsku...það hjálpaði mér ekkert sko...

Garún, 21.5.2008 kl. 19:43

4 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég þori ekki öðru en að læra það sem mér er kennt ( að mestu leiti ), en ég er nú svo hrikaleg að þetta festist voða lítið í minninu.
Ég ætla að reyna að fá eins hátt og ég get í þessu, þar sem að ég skora ábyggilega ekki hátt.

En takk fyrir þessa ábendingu Garún, ég mun örugglega hugsa til baka og þakka þér fyrir í huganum að hafa sagt þetta við mig!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 21.5.2008 kl. 19:48

5 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Dansk er dejlig og man kan snakke dansk I Danmark!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 21.5.2008 kl. 23:12

6 Smámynd: Brynja skordal

Gangi þér vel ljúfust knús inn í daginn

Brynja skordal, 22.5.2008 kl. 10:39

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Danskan var mitt leiðinlegasta fag og þar sem ég var að læra sænsku þá var danskan ekki hátt skrifuð, en mér finnst hún ekkert svo slæm í dag.
Þú munt standa þig Rósin mín.
Baráttukveðjur Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 22.5.2008 kl. 11:23

8 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gangi þér vel Róslín mín knús.

Kristín Katla Árnadóttir, 22.5.2008 kl. 14:33

9 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk kærlega fyrir dömur

Ég fékk að bíða eftir að hún fór yfir prófið mitt, og ég hef staðið mig best í þessu prófi, 8.5 .. Örugglega Jóhönnu til mikillar sælubótar

En ég verð að halda áfram að pakka!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.5.2008 kl. 15:07

10 identicon

við hljótum nu að komast í gegnum þetta, danskan, enskan og íslenskan eru ekkert mál. Stærðfræðin er hinsvegar erfið, og náttúrufræðin og samfélagsfræðin eru svosem ekkert auðveldar. en gangi þér vel :) vonandi komum við vel útúr þessu :)

Eva (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 15:12

11 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

TIL HAMINGJU MEÐ EINKUNNINA Í DÖNSKU! .. Já, er hoppandi kát yfir þér. Haltu áfram að vera svona dugleg og vera þú!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 23.5.2008 kl. 09:22

12 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk Jóhanna

Róslín A. Valdemarsdóttir, 23.5.2008 kl. 10:00

13 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Vá, 8,5 í dönsku.  Þú ert flott stelpa Róslín mín

Sigrún Jónsdóttir, 23.5.2008 kl. 23:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband