Í amstri dagsins..

Ég fór út á hjúkrunarheimili áðan vegna exems og fótameiðsla. En allt í lagi, mér var sagt að gera hitt og þetta, og vonandi mun það hjálpa mér.
En ég ætlaði þó ekki að skrifa um það, á biðstofunni biðum við mamma, viti menn hverja ég sá ganga inn á hjúkrunarheimilið. Litla ljóshærða, krúttlega stelpan hún Snædís sem ég er búin að skrifa um hér áður. Hún kom með pabba sínum inn og þau settust við hliðina á mér á biðstofunni, skottan gengur að bókaskáp og nær sér í bók. Sest við hlið pabba síns á lausan stól sem var hliðina á lausa stólnum við vinstri hönd mér.
Hún byrjar að fletta í gegnum bókina, og ætlaðist svo til að mér heyrðist að pabbi hennar læsi fyrir hana, en hann benti henni á að hún gæti bara skoðað myndirnar núna. Allt í lagi með það, svo fer stelpan að söngla, mikil einbeitingar vinna þar í gangi, ótrúlega krúttlegt. Síðan voru þau kölluð inn.

Í dag fórum við á fyrirlestur hjá Begga að mig minnir að hann heitir, sem er blindur. Hann sagði okkur ýmislegt frá því hvernig á að umgangast blint fólk og margt. Hann skírði það út fyrir okkur að hann hefði fengið herpes í augað, þó ekki kynsjúkdóminn heldur einskonar frunsu í augað.
Hann hefur bara 1-2 prósent sjón sem er voða lítið, eða eins og hann sagði ,, staurblindur ", hann getur séð útlínur ef það er ljós og svona. Svo var hann svo næmur að Sverrir sem sat hliðina á mér var að fikta í rennilásnum að hann heyrði hljóð sem var eins og einhver væri að smella penna og benti hvert.
Þessi fyrirlestur var mjög fræðandi og skemmtilegur á sinn hátt.

Mig langar að leyfa ykkur að lesa þetta, allflestir kannast við þetta ljóð, þetta þurftum við krakkarnir að læra í 5. eða 6. bekk.

Slysaskot í Palestínu

Lítil stúlka. Lítil stúlka.
Lítil svarteyg dökkhærð stúlka
liggur skotin.
Dimmrautt blóð í hrokknu hári.
Höfuðkúpan brotin.

Ég er Breti, dagsins djarfi
dáti, suður í Palestínu,
en er kvöldar klökkur, einn,
kútur lítill, mömmu sveinn.

Mín synd er stór. Ó, systir mín.
Svarið get ég, feilskot var það.
Eins og hnífur hjartað skar það,
hjarta mitt, ó, systir mín,
fyrirgefðu, fyrirgefðu,
anginn litli, anginn minn.

Ég ætlaði að skjóta hann pabba þinn.




...Jæja, ég er farin að gera eitthvað!

KnúsHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þú ert nú aldeilis eitthvað að gera alla tíð, vonandi verður allt í lagi með
fætur þínar. eru þær tryggðar. nei bara að því að þú ert í boltanum.
                                 Knús Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.5.2008 kl. 17:04

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég er bara búin að vera með beinhimnabólgu síðan í byrjun árs!
Ég náttúrulega markmaður svo ég vona að hendurnar og puttarnir og helst bakið séu líka vel tryggð!

Knús á þig Milla

Róslín A. Valdemarsdóttir, 19.5.2008 kl. 17:06

3 Smámynd: Halla Vilbergsdóttir

Er þetta hann Beggi frá grindó.....ef svo er þá er hann mesti snillingur sem ég hef hitt.....hann hefur geggjaðan húmor fyrir sjálfum sér og aldrei hef ég heyrt nokkurn segja eins marga brandara um blinda eins og hann sjálfan ;) magnaður drengur þar...Já og ég heyrði einu sinni að gott ráð við beinhimnubólgu væri að bera laxerolíu á fæturnar fyrir nóttina....og þegar ég var sem meðst í fótboltanum þá stundaði ég þetta laxeroliu dæmi og sveimer þá eg held það hafi virkað;) kanski var það bara af þvi ég trúði á það hahahahah kveðja krútt frá vogum;)

Halla Vilbergsdóttir, 19.5.2008 kl. 19:43

4 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Hallgerður, ég þorði ekki öðru en að halda myndinni inni áfram, bara fyrir þig!

Halla, hann sagðist koma frá Vestmannaeyjum, peyji eins og Hallgerður hér að ofan kallar það. Hann flutti þó í bæinn og var þar mjög lengi, en þessi peyji hefur húmor fyrir sjálfum sér tók ég eftir.
Ég myndi pottþétt sleikja á mér fótinn í svefni, bara því þetta er ég ef ég myndi setja á mig laxerolíu! Á að taka þrisvar á dag tvær 200 mg íbúfen, s.s. 6 töflur yfir daginn og svo tek ég núna 7 töflur á dag þá! Líka gegn kláða vegna exemsins, ans ans, stærsta lyfjameðferð sem ég hef farið í, enda aldrei verið nein.
En takk fyrir gott ráð!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 19.5.2008 kl. 19:50

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Knús á þig Róslín mín Þetta ljóð er..er..úff, það sýnir bara styrjaldir eins og þær eru, skelfilegar

Sigrún Jónsdóttir, 19.5.2008 kl. 21:34

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

"Magnað" var orðið sem ég var að leita að.

Sigrún Jónsdóttir, 19.5.2008 kl. 21:35

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Svakalega ertu flink að gera hausmynd! .. og flott af þér myndin sem þú ert að teygja þig upp, reyndar allar myndirnar. Vesen er þetta með exemið .. bróðir minn er með allskonar óþol og fær exem - t.d. af leðri.   Vonandi dugar meðferðin!

Man eftir þessu ljóði úr skóla, það er afskaplega sterkt.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 19.5.2008 kl. 21:38

8 Smámynd: Halla Rut

Já, einmitt rosalega flott "hausmynd"

Halla Rut , 19.5.2008 kl. 23:57

9 Smámynd: Brynja skordal

Æ vonandi nærðu bata við þessu fótameini skvís já mikið er þetta flott mynd þarna hjá þér knús inn í nóttina

Brynja skordal, 20.5.2008 kl. 00:37

10 Smámynd: Linda litla

Hausinn á síðnunni er rosaflottur, þú ert seig við þetta. Ég var að reyna eitthvað um daginn en gafst upp, endaði með því að breyta bara lúkkinu. Láttu þér batna í fætinum.

Kv. Linda

Linda litla, 20.5.2008 kl. 09:27

11 identicon

Ég get ekki lesið þetta ljóð það er svo sorglegt.... Vonandi lagast þú í fótunum sem fyrst, það er mikilvægt að halda hita á leggjunum þegar maður er með beinhimnubólgu svo best væri ef þú værir í legghlífum eða hlýjum sokkum sem ná upp að hnjám, sérstaklega á æfingum.

 Have a nice day

Ragga hin eina sanna (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 11:50

12 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Knús á þig Sigrún, Ótrúlegt hvað hafa farist mörg mannslíf vegna þessara ljótu stríða!

Takk Jóhanna mín. Ég er svo hrikalega skemmtileg í photoshop, finnst líka mega breyta til og svona hérna inni.

Autumn!!!

Og ef þetta virkar þá er þetta myndin í minni gerðum.

En ég hef aldrei fengið exem né neitt svona, ótrúlega skrítið!

Takk Halla Rut!

Takk Brynja mín, knús

Takk Linda! Þetta er ekkert smá erfiðisverk oft á tíðum, líka getur það verið allpirrandi á sumum tímapunktum. Ég er með svona melló sljóa tölvu og svo bara svona fartölvumús við allar mínar vinnur í photoshop og því.

Nei einmitt Ragga, sorglegt ljóð. Ég er alltaf með legghlífar og í háum sokkum á æfingum en annars bara venjulegum hælasokkum. Hinir stoppa blóðrásina mína!

Have a nice day sömuleiðis!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 20.5.2008 kl. 15:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband