18.5.2008 | 19:11
Bloggvinalisti, óvissuferð og ungmennaþing..
Stundum stendur maður alveg á gati og veit ekki hvað maður getur talað um það er svo margt sem manni langar að segja.
Mig langar að byrja á því að koma því á hreint. Ég hef undanfarna mánuði eignast fleiri og fleiri bloggvini hérna á moggablogginu. Ég fylgist misvel með þeim, enda feikna hópur sem er komin í hús. Ég viðurkenni það alveg að núna er ég í hnút við að vita hvað ég get sagt við hvern og einn ( get allteins sagt hverja og eina ), enda þykir mér oftast nær gaman að lesa skrifin hjá flestum.
Ég vil alls ekki gera upp á milli og hreinsa útaf þá sem mér líst ekki á eða eitthvað svoleiðis, þá er ég að gera upp á milli, svo það sjáist mjög vel. Það kemur fyrir að ég rekist á einhvern rosalega skemmtilegan bloggara sem ég verð að senda "boðsmiða" til að verða vinur minn svo ég geti fylgst betur með.
Það kom einmitt fyrir mig í gær að ég rakst á bloggara sem ég hef mikinn áhuga á að fylgjast með, þar sem hún er að vinna við eitthvað sem mig langar að starfa við í framtíðinni að hálfu leiti. Svo það er ágætis innsæi í að fylgjast með svoleiðis, loksins þegar tækifæri gefst til. Auðvitað greip ég það!
Ég er enn að bíða, en hlakka mikið til að sjá hvort sú vilji vera ein af bloggvinum mínum.
Ég vona að fólk fari ekki í fýlu yfir því ef ég kvitti ekki hjá því, þó ég komi inn og lesi þá þarf ekki alltaf að vera að ég viti nokkurn veginn hvað ég get skrifað, svo bara krossleggið fingurna
!
Annars fór ég í óvissuferð í gær með leikfélaginu, mættum flest kl. 3 upp í Hlöðu og vissu fáir hvað væri á döfinni. En ferðin byrjaði á löngum ratleik, þar sem við gengum bæinn, eða mitt lið a.m.k. fram og til baka allmörgu sinnum. Enduðum svo á spíttbát út á Austurstrendur eða eitthvað svoleiðis, frá Skinney Þinganesi, og þaðan keyrðum við svo öll heim til Siffa sem býr upp í sveit og krakkarnir fóru í náttúrulega heita potta. Eftir langa viðveru þar var keyrt heim til Nönnu Halldóru og Hafþórs í grillaðar pylsur og hamborgara. Þar á eftir horfðum við á Rocky Horror upptökuna af leikritinu og hlógum og skemmtum okkur yfir henni, æðislegur dagur þó ég hafi fengið kvef vegna allrar útiverunnar.
Í dag fór ég á ungmennaþing, sem var þó meira af öldnum en ungum, ef satt má segja. Ég kom með hugmynd sem pabbi hefur reynt að koma með áður og þarna var tekið vel í hana, enda ekki einhver maður út í bæ sem " stakk upp á henni ".
Ég er reynslunni ríkari, þ.e.a.s. á því sviði að fólk þarf að vera frekt til að komast til máls á svona þingum, þó svo að það hafi nú ekki verið fjölmennt. En ég get sagt ykkur það að fundurinn var góður og vonandi verður haldið áfram þeirri stefnu sem komist var að á fundinum.
Núna þarf ég að kveðja og fara á vit lærdómsins.
Knús á ykkur

Athugasemdir
Þetta fékk mig til að lyfta upp öðru munnvikinu Hallgerður
! ( Meina þá að ég er svo löt að ég hafði ekki nennu til að lyfta upp hinu!)

Takk Hallgerður mín
Foreldrar mínir eru "semí" gamlir, samt bara á fínasta aldri, 47 og 46 ára
Róslín A. Valdemarsdóttir, 18.5.2008 kl. 19:53
Ekkert samviskubit hér, þú hefur þetta bara eins og þú villt og hefur tíma til.
Ég á bloggvini sem kommenta aldrei eða kvitta og þá geri ég það heldur ekki hjá þeim, fullt af fólki kemur inn og les án þess að kvitta svo þetta er ekkert mál.
Þú ert bara bestust.
Knús til þín skjóðan mín.
þín Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.5.2008 kl. 20:02
Ég á einmitt einhverja svoleiðis bloggvini, en allflestir kíkja á mig og kvitta fyrir sig einhverntíma.

Knús
Róslín A. Valdemarsdóttir, 18.5.2008 kl. 20:14
Hæ Róslín mín :)
Langaði bara að láta þig vita að ég kíki hér stundum við, þú ert æði. Þurfum að fara að hittast sem fyrst..
Sakna þín<3
Salóme (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 20:26
Ég sakna þín líka!!!
!
Ég gerði mér stórlega grein að Saló vinkona mín kíkti á mig
Róslín A. Valdemarsdóttir, 18.5.2008 kl. 20:29
Það er nú bara fullt starf ef að maður ætlaði að kvitta hjá öllum! Ég raða uppáhaldsbloggvinum mínum ofarlega á listann (þú ert að færast ofar og ofar
) svo þegar ég hef tíma þá kíki ég á þá. Bara vandamál það eru orðnir svo margir uppáhalds
en þú ert flott og það er alltaf gaman að lesa hjá þér, stundum er það gert á hlaupum og enginn tími fyrir kvitt 
Huld S. Ringsted, 18.5.2008 kl. 20:33
Nei einmitt, maður yrði allann daginn bara
!
!
Já ég á ótrúlega erfitt með að gera upp á milli, því það eru svo margir sem mér finnst gaman að kíkja á, svo ég leita bara eftir þeim í listanum ef það er eitthvað vandamál. Gott að sjónin sé alveg fullstarfandi... ennþá!
Já segðu, gerist oft þannig hjá mér, svo er nú til líf fyrir utan bloggið, enda annars væri ekkert merkilegt til að segja frá
Róslín A. Valdemarsdóttir, 18.5.2008 kl. 20:37
Takk Sigga
Róslín A. Valdemarsdóttir, 18.5.2008 kl. 21:08
Njóttu lífsins Róslín mín, þú ert ljúf
Sigrún Jónsdóttir, 18.5.2008 kl. 21:58
Takk Sigrún, sömuleiðis

Nei nú mátaðiru mín Anna!
Ég kannast við manninn, en ekki konuna, nú þarf ég að fara að horfa vel á alla Hornfirðinga og grandskoða þá betur!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 18.5.2008 kl. 22:40
Auðvitað átti þetta að vera mig, en ekki mín! Hihi, önnum kafin og þreytt að skrifa..

Hljómar eins og þú hafir verið að máta fötin mín eða eitthvað...
Róslín A. Valdemarsdóttir, 18.5.2008 kl. 23:13
Alltaf gaman að lesa færslurnar þínar ljúfust auðvitað kemst maður ekki yfir alla bloggvini í einu maður kvittar bara þegar maður getur og hefur nennu til en einhvernvegin þróast þetta samt að maður les sína "uppáhalds" óvart og kvittar strax hehehe og svo blogga sumir oft á dag þannig að maður kemst ekki yfir svo mikið enda held ég að engin ætlist til þess alltaf gaman að fá smá komment þó það sé bara eitt lítið innlit en annars knús inn í nóttina sæta
Brynja skordal, 19.5.2008 kl. 00:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.