13.5.2008 | 19:35
Klaufi & misheppnispúkinn hlaupinn í mig!
Langt síðan ég hef getað sagt ykkur skemmtilega hluti en svona allsvakalega hluti lenti ég í, í morgun í skólanum;
Ég á það til að vera hrikalega klaufsk og misheppnuð, en það eru bara gullmolar sem koma út úr því, a.m.k. oftast. En í dag tókst mér, næstumþví-fyrirmyndarnemanum , hvorki meira né minna en að henda ljósi niður úr loftinu, en ég vil ekki skíra nánar út frá því enda hrikalegur klaufaskapur.
En það sem var fyndnast við þetta allt saman ( þó ég hafi fengið nett samviskubit í leiðinni ), þá hef ég aldrei séð Rafn hlæja jafn mikið, hann lá bara í gólfinu af hlátri! Gott að svona hlutir geta glatt hjartað hans.
Ég veit bara hvað ég á að gera ef hann verður eitthvað niðurlútur, ganga berserksgang yfir alla dauða hluti!
Ég fór gangandi eins og krakkarnir í 9. bekk út á Hjúkrunarheimili með Rafni ( þess má geta að þetta var nú fyrir atburðinn fyrir ofan). Á leiðinni í bólusetningu, við vorum að láta bólusetja okkur fyrir stífkrampa, barnaveiki og mænusótt ef ég man rétt, og eftir það í heyrnamælingu.
Eftir ekki svo langan tíma í biðstofunni var næsti kallaður inn, og næsti og þar til að kom að mér, allt í lagi með það. Ég spjallaði bara við hjúkrunarkonuna, spurði hvort ég fengi ekki sprautuna í vinstri höndina svo ég gæti kannski sleppt skóla ( talandi um fyrirmyndarnemanda!).
Svo bar hún eitthvað á mig og stakk þessari ljótu nál í mig og það sveið ver en að láta spritt í sár!
Ég fór síðan í heyrnamælingu og fékk þá niðurstöðu að það væri engin afsökun ef ég segði við mömmu að ég heyrði ekki í henni!
En þegar ég kom svo fram beið Rafn eftir mér og við fórum síðan saman upp í skóla, og þá fékk ég þessa svakalegu vöðvabólgu!! Gat voða lítið hreyft höndina og fann næstum marblettinn bara myndast á hendinni á mér. Nú er mér ennþá frekar illt í hendinni, en þetta grær vonandi áður en ég gifti mig, nema að ég gifti mig á morgun, þá er ég í vondum málum!
Marbletturinn er á við 5 króna pening, svo að þetta hverfur að lokum, en verkurinn er bland af sting og beinverki, ég er ekki sátt!
Svo má þess til geta að í morgun, kl. 05.30, já ég er sammála ykkur, mjög ókristilegur tími, vaknaði ég og byrjaði að hafa mig til fyrir æfingu. Mætti á æfingu kl. 6 í morgun, fótboltaæfingu og gekk svona ágætlega. Hjólaði á æfingu, og til baka heim, fór í sturtu og gerði mig pínu sæta fyrir skólann. Setti nestið sem mamma hafði smurt í töskuna og hjólaði af stað upp í skóla, og vitið þið hvern ég hitti þar????
Sætasta kærastann minn sem ég gæti ímyndað mér!
Nú er ég farin að segja fleirum þessar yndislegu sögur sem ég átti í amstri dagsins mín kæru!
Knús á ykkur!
Athugasemdir
Halllllllllgerður! Nú er ég þér ósammála, á meðan þetta er svona sætt samband þá er það í lagi, við höldum ekki að við séum yfir tvítugt elsku vina mín!

Þú myndir bráðna ef þú myndir sjá okkur saman, það gera allavega margir, margir aðrir mín kæra!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 13.5.2008 kl. 20:29
Sæl litli dúllurass.... Ég hefði nú átt að sprauta ykkur skötuhjúin það hefði mér fundist gaman!!!! Þegar ég sprauta þá kemur engin marblettur. Haltu áfram að vera dúlla, kveðja Ragga
Ragga mamma Rafns.... (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 21:21
Þú ert alveg yndisleg Sigga mín, takk æðislega!




Ragga, ég einmitt ætlaði að spyrja þig á Msn afhverju þú hefðir ekki sprautað okkur! Þar sem ég hef aldrei fengið marblett áður, nema í þetta eina skipti, og aldrei hef ég fundið jafn mikið til eftir sprautur!
Ég sé þig Ragga mín
Róslín A. Valdemarsdóttir, 13.5.2008 kl. 21:37
Þið eruð bara æðisleg þú og Rafn þinn, Rósin mín, ég átti líka svona vin er ég var á þínum aldri ekki hafði ég neitt slæmt af því, en svo hættum við saman ég fór út á skóla og var í tvö ár. Þegar ég svo átti Dóru mína þá pössuðu þau einu sinni fyrir okkur hann og kærasta hans, er þetta ekki sætt?.
Verið bara ætíð heiðarleg við hvort annað.
Knús kveðjur
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.5.2008 kl. 09:51
Hvað segiru .. fékkstu vöðvabólgu í höndina? hehe .. það hef ég nú bara aldrei heyrt um áður ...
Sædís sys (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 13:09
Mér finnst þetta ótrúlega sætt Milla!



Knús á þig
Sædís, þetta er allt eins, höfuðverkur í nefið og eins með augun, kvef í augun líka! Afhverju er ekki hægt að fá vöðvabólgu í höndina þá?
Vöðvabólgan leiddi niður, og ég get ekki rétt upp hægri hendina án þess að verða illt!
Hallgerður mín, ég trúði ekki mínum eigin augum þegar ég las fyrra skilaboðið frá þér, ég tak það með glöðu geði til baka þó!
Mér finnst hrikalegt að heyra með kærastann þinn fyrrverandi, hrikalega er það sorglegt!
Knús
Róslín A. Valdemarsdóttir, 14.5.2008 kl. 16:20
híhí! ég hef nú bara aldrei fengið vöðvabólgu neinsstaðar annarsstaðar heldur en í bakið og í hálsinn ,,, en þú lærir á þetta þegar þú ferð að vinna eins og manneskja .. ekki að reita arfa og svona .. heldur erfiðisvinnu .. =) en nei róslín þú hefur ábyggilega bara verið aum eftir sprautuna ..
Sædís sys (IP-tala skráð) 15.5.2008 kl. 13:19
Krúttið þitt..... ég bíð eftir að við bloggvininirnir fáum boðskortið í brúðkaupið hjá ykkur
Linda litla, 15.5.2008 kl. 19:48
Já mátti til með að kommenta.... Ég vona nú að það verði nú bið á brúðkaupsboði... Því ég tími ekki að láta son minn frá mér alveg strax og finnst hann nú ekki tilbúin í það litla skinnið....En það er bara yndislegt að þið tvö skulið vera svona fallegt og krúttlegt par.
Það er fátt skemmtilegra en að vera ástfanginn á unglingsárunum
Hagið ykkur vel
og munið að vera ung og hamingjusöm...
Ástarkveðja Ragga mamma Rafns....
Ragga mamma Rafns... (IP-tala skráð) 15.5.2008 kl. 20:16
Hef átt kærasta frá því ég man eftir mér, enda ótrúleg strákaflenna!
... Samböndin hafa að vísu verið mjög misalvarleg. Vona að ég sé komin með endanlegan ,,kærasta" .. hehe..
Þú minnir mig svolítið á Línu Langsokk, svona sjálfstæð, uppátækjasöm og skemmtileg. Vonandi er marbletturinn eftir sprautuna horfinn - hann verður örugglega horfinn fyrir giftingu, eins og þú segir sjálf. Það liggur við að ég taki prestvígslu bara til að geta gift þig!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 15.5.2008 kl. 20:26
Þá vitum við það, Rafn er eins og loðfíll.
Knús á þig
Anna Guðný , 15.5.2008 kl. 23:47
Þú ert bara systir mín Sædís, farðu að venjast því!



!

Æ, Linda, ef það verður einhverntíma þá verður það nú ekki næstum því strax, erum bara 15 ára, þú mannst
Ragga mín, þú ert best!
Haha! Jóhanna ég trúi líka ekki öðru
Gaman að segja frá því, að því þú minnist á Línu langsokk, þá í eitt skipti sem ég var úti í útlöndum, þá fórum við inn á veitingastað fyrsta kvöldið. Stjórnandi veitingastaðarins að ég held tók á móti okkur og ég var með fléttur í hárinu, og þaðan í frá kallaði hann mig alltaf Pippy! Svo furðaði hann sig á því að ég át hálfan kjúkling! ( Minnir að ég hafi verið 8-9 ára, svo það er ekki furða!).
En marbletturinn er enn, öfugt hjarta kalla ég hann, því það er bólga í kring um hann sem sést frá mér eins og hjarta!!
En nema að það verði bara ólögleg gifting!
Æ, Anna Guðný, hann er sko enginn loðfíll!
Knús!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.5.2008 kl. 00:13
Sko, þetta átti að vera brandari


Anna Guðný , 16.5.2008 kl. 00:41
Líka hjá mér
Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.5.2008 kl. 00:45
Æi þú ert svo skemmtileg Róslín mín. Takk fyrir mig
Kristín Katla Árnadóttir, 16.5.2008 kl. 14:26
hahaha það var nú líka enginn venjulegur kjúklingur .. risa kjúlli og þú borðaðir helminginn af honum og franskarnar með .. hehe skrítið að kallinn hafi verið hissa ..
Sædís sys (IP-tala skráð) 16.5.2008 kl. 14:48
Sigga, mér fannst þetta ekki góð lesning vegna þess að þetta er óréttlátt.
Kennarinn er rosalega góður kennari og þetta var allt í gamni gert skal ég segja þér Sigga mín, hann/hún er ein af bestu kennurunum í skólanum get ég sagt þér.
En ég mun rita nýja grein inn í sambandi við kennara eftir smá.
Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.5.2008 kl. 19:58
Hvað varð um færsluna sem ég ætlaði að fara að kommenta á?.
Knús Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.5.2008 kl. 20:44
Eins og ég segi finnst mér þetta ekki réttlát færsla, en ég er enn að fara að skrifa um starf skólans hérna á Höfn svo að sú færsla finnst mér réttlát, því þar segi ég allt satt frá minni hlið...

Knús
Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.5.2008 kl. 20:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.