Enn bíð ég og bíð!

Það er kannski ekki það besta sem maður gerir, að sitja á rassinum og bíða að fá eitthvað upp í hendurnar sísvona. Það sem ég á við, að ég bíð enn eftir því að nafn mitt komist á pappíra.
Hjá mörgum ungum krökkum er markmiðið að verða fræg/ur íþróttakona/maður eða í leiklist eða í tónlist.
Þetta er enn mitt markmið, að nafn mitt verði þekkt. Margir þekkja það nú þegar og kannast eitthvað við mig, kannski ekki margir, en nokkrir miðað við það sem ég hef verið að gera.
Samkvæmt google.is þá er ég nú langt komin með frægðina, maður getur skrifað heilt nafn mitt og það koma yfir 10 aukasíður sem maður þarf að fletta.

Frægð skiptir ekki máli, og getur eyðilagt líf sumra sem geta ekki farið rétt með hana. Því höfum við öll getað fylgst með fyr á árinu. Ég vona, ef ég verð þekkt á landinu að ég eyðileggi ekki sjálfa mig né neitt.

Ég ætla að lofa mér að vera ég sjálf, hvað sem gerist, ég kem alltaf fram sem ég sjálf, engin önnurSmile ...

Ég sendi ykkur knús!Heart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hæ dúllan mín.

Hvað er það sem þú vilt verða þekkt fyrir? Eitthvað varðandi stjórnmál er það ekki? Hefurðu einhvern tíma sagt okkur nákvæmlega hvað það er sem þú stefnir á? Þú ert nú svo einbeitt ung kona að ég er viss um að þú ert búin að taka margar ákvarðanir varðandi framtíðina sem jafnaldrar þínir eru ekki einu sinni farnir að leiða hugann að.

Jóna Á. Gísladóttir, 12.5.2008 kl. 21:03

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ég held nú að "frægðin" sé ekkert svo eftirsóknarverð Róslín mín, en þú átt örugglega eftir að vekja athygli fyrir eitthvað voða gott í lífinu.  Halt bara áfram að vera þú og stattu með sjálfri þér.

Sigrún Jónsdóttir, 12.5.2008 kl. 21:12

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Hæ Jóna mín!

Heyrðu, ég stefni á svo margt í framtíðinni, og þess vegna ætla ég að verða 118 ára gömul. Mig langar allra helst að komast langt í leiklistinni hér á landi, og þá verður vel launað fyrir hana!
Ég sagði þetta fyrir framan leikstjórann sem var með okkur fyrir Rocky Horror, hann Jón Inga Bachelor kynni og krakkana sem þarna sátu og hlustuðu;

,, Fyrst ætla ég í framhaldsskóla, svo í Kvikmyndaskóla og svo ætla ég að verða forseti Íslands!"

En þegar ég skoða það betur, langar mig bara að vera þekkt fyrir að vera ég, leikkona, alþingismaður, pólitíkus, trommuleikari, ljósmyndari, bara hvað sem ég tek mér fyrir hendur. En eins og ég segi, stefni ég að leiklistinni og gríp öll tækifæri sem gefast til að æfa mig betur á því sviði.
En það sem skiptir mig mikilvægast í framtíðinni, að ég fái að njóta lífsins, í sama hvaða ástandi ég verð í, hvort ég eigi fjölskyldu og góða vini, eða hvað sem er.
Mig langar að vera vel efnuð, til að geta eitt ellinni í ferðalög og kynna mér heiminn!

Sigrún, að vissu leiti ekki, en að vissu leiti er hún eftirsóknarverð, mörgum langar að heyra nafnið sitt í útvarpi, sjónvarpi eða í blöðum eftir að hafa gert góðverk.
Ég mun vonandi alltaf vera ég sjálf, ekki eitthvað "wannabe" eins og er svo mikið um í dag!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 12.5.2008 kl. 21:23

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Slá í gegn, slá í gegn... þú veist þú þráir að slá í gegn...  ..Smá grín hérna megin! Þú ert nú á góðri leið með að verða fræg held ég. Aðalmálið er að þú sért sátt við það sem þú ert að gera og það leiði eitthvað gott af sér fyrir þig og auðvitað annað fólk.

Frægt fólk getur haft áhrif á heiminn - til góðs eða til ills. Sumir verða frægir að endemum, þ.e.a.s. verða frægir fyrir eitthvað neikvætt, eins og að brjóta af sér. Veit auðvitað að þú átt eftir að verða fræg og gera eitthvað stórkostlegt og gott!

Nám er vinna, frami er vinna, .... vinnan göfgar manninn.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 13.5.2008 kl. 11:20

5 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Vertu bara þú sjálf  þú ert svo góð stúlka og einlæg og mjög skynsöm.

Knús á þig

Kristín Katla Árnadóttir, 13.5.2008 kl. 12:06

6 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Þakka þér æðislega Sigga mín!!
Knús á þig


Helga, skemmtilega frá því að segja, á tímanum sem þú varst farin að sofa var ég búin að sofa í sirkabát 3 tíma, og átti aðeins þrjá og hálfan eftir, vaknaði nefnilega á ókristilegum tíma, hálf 6 og fór á fótboltaæfingu kl. 6!
Knús á þig Helga mín

Einmitt það Jóhanna, þannig er það bara, verður ekkert einfaldara!
Ég held það nefnilega líka, bara að halda áfram að gera það sem ég get og sýna fólki hver ég er. Ég er mjög sátt með það sem ég geri oftast, og reyni að skila öllu af mér eins vel og hægt er ( fyrir utan skriflegan lærning, enda hrikaleg skrifhönd!).

Ég ætla að verða frægasti raðmorðingi veraldar, allra alda og aldrei láta ná mér... Nei mig langar að vera þekkt fyrir eitthvað mjög gott, auðvitað!

Nám er niðurlæging að vissu leiti líka, en nám lífsins er allt annað!


Takk yndislega Katla mín, ég er, hvar sem ég kem og hvar sem ég er, ég sjálf. Feimin, athyglissjúk, pirrandi, skemmtileg og rugluð í senn, og af og til afar hljóðlát og lítið fyrir mér fara, en þó afar sjaldan!
Knús á þig Katla mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 13.5.2008 kl. 17:15

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þú átt eftir að verða fræg, fyrir hvað, kemur í ljós.
                 Knús til þín
                   Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.5.2008 kl. 17:48

8 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Knús á þig Milla mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 13.5.2008 kl. 17:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband