Orðlaus!

Góða kvöldið kæru bloggvinir og aðrir gestir á síðunni minni.

Ég hef skrifað mjög fá orð síðustu daga, enda hálfgerð skrifstífla, setningarnar eiga erfitt með að myndast í kollinum á mér, svo að ekkert leiðir fram í putta.
En ég hef voða fátt merkilegt gert, ég lærði í gækvöldi og tók til í dag, annað ekki.

Ég ferðast smá á næstu þremur vikum og er að fara norður um næstu helgi með stelpunum í fótboltanum að keppa æfingarleiki og hrista liðið saman.

Mun svo helgina eftir það fara í útskriftarveislu hjá frænku minni. Þar mun ég líka að laugardeginum til kíkja í ljósmyndakonugrúbbu hitting, ótrúlega gaman örugglega að hitta margar af konunum í grúbbunni!

En eins og ég segi, þá er ég ekki með það á hreinu hvað ég get skrifað, svo ég læt þetta duga í bili, endilega hafiði samt samband við mig ef þið viljið heyra í mérJoyful !

E.s. Ég fékk leyfi frá The Nanas um að setja lög sem ég á með þeim inná síðuna mína og hér sjáið þið til vinstri í tónlistarspilaranum lagið I'll give it up svo endilega hlustið á það Joyful !

KnúsHeart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Það er bara brjálað að gera Róslín mín.  Hafðu það gott duglega unga kona

Sigrún Jónsdóttir, 12.5.2008 kl. 00:33

2 Smámynd: Anna Guðný

Hvar á að spila æfingarleikina?

Anna Guðný , 12.5.2008 kl. 00:37

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Í Boganum, Anna Guðný..

Róslín A. Valdemarsdóttir, 12.5.2008 kl. 00:44

4 Smámynd: Linda litla

Það er alltaf nóg að gera á þínum bæ Róslín. það er nokkuð ljóst að þú átt ekki að hafa tíma til að láta þér leiðast.

hafðu það gott sætust.

Linda litla, 12.5.2008 kl. 02:30

5 identicon

Hlakka til að sjá þig :)
Í eigin persónu þar er að segja :)

Kveðja
Fríða

Fríða (IP-tala skráð) 12.5.2008 kl. 03:56

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Rósin mín er ekki í nógu að snúast hjá þér, prófin skólinn að verða búin sumarið að hefjast með fótbolta glensi og gamni, það er allavega nóg að gera hjá mínum
að rifja upp fyrir próf, núna hafa þær verið að lesa Egils Sögu. próf í henni á þriðjudaginn. þannig að snúllan mín vertu ekki að hafa áhyggjur af blogginu,
þú ert nú það skemmtileg að við bíðum bara eftir því að þú hafir tíma,
allavega geri ég það.
                                     Knús til þín Rósin mín
                                              Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.5.2008 kl. 07:57

7 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Knús á þig Helga

Æ, ég veit það ekki Sigrún, en hafðu það sömuleiðis gott

Skemmtilegu fólki leiðist aldrei Linda, en því miður kemur fyrir að mér leiðist!
Sömuleiðis!

Úff, Fríða hvað ég hlakka til, er bara með hnút í maganum!!!

Prófin verða eitthvað skrítin í ár Milla, ég skil ekki alveg hvað kennararnir eru að hugsa, en ég sé það þegar þar að kemur. Er á leið í dönsku próf á morgun og greinilega ensku á miðvikudaginn!
Ég fer á fótboltaæfingu í dag, fyrstu æfinguna með nýju þjálfurunum!!
Ég mun skrifa eitthvað fallegt og skemmtilegt þegar puttarnir verða komnir í samstarf við hugsanir mínar...

Knús á þig Milla mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 12.5.2008 kl. 11:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband