Nú kvet ég ykkur...

... til að gera eins og ég, hjóla í skólann/vinnuna/æfingar eða hvað sem er!
Sama í hvaða veðri þá er það mikið hollara heldur en að sitja í bíl, og mikið betra fyrir náttúruna.
Eða þá að þið getið labbað, eflaust hafa einhver fyrirtæki tekið þátt í þeirri keppni, og þar á meðal skólinn sem mamma vinnur í.
Pabbi ákvað að hjóla líka í vinnuna, svo að mér gefst ekkert annað fært en að fara hjólandi, ég neita því allavega að ganga!

Annars hefur voða lítið á daga mína drifið, hef þó drifið mig á æfingar og klárað þær, það kom nú tími til að ég gæti það.
Meisi kom áðan að stilla trommusettið fyrir mig svo að núna loksins get ég spilað á trommusett sem er ekki falskt!

En því miður er ég alveg tóm, þó mig langi að segja svo margt, þá veit ég ekki hvernig ég á að setja það saman, orðin hringla eitt og eitt í höfðinu á mér, ekkert samsett!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

Ég tek undir með þér að hvetja alla til að hjóla eða labba sem eiga möguleiga á því, er sjálfur búinn að labba á veturnar og hjóla á sumrin í vinnuna síðustu 28 árin.

Hallgrímur Óli Helgason, 9.5.2008 kl. 21:23

2 identicon

HVETJA Róslin ekki kvetja ! ;) :')

Eva Kristín (IP-tala skráð) 10.5.2008 kl. 02:01

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Eva, eins og ég hef margoft sagt þér áður, þá vil ég legg áherslu á K-IÐ ekki H-IÐ!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 10.5.2008 kl. 02:04

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Æ snúllan mín vildi að ég gæti labbað allt sem ég þarf að fara, gerði það ætíð hér áður og fyrr, en hvað með það, þýðir ekki að fárast.
Trommaðu að öllum kröftum um helgina þá færðu bloggskriftina til að virka.
                                Knús til þín besta mín
                                   Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 10.5.2008 kl. 07:40

5 Smámynd: Anna Guðný

Ég er nú ekki viss um að ég leggi það á mig Róslín min að hjóla alla leið í vinnuna. Spurning hvort ég eigi að fara löngu leiðina eða þá syttri. Eða bara fylgja einhverjum öðrum, ég gæti það.

Æ ætli ég haldi mig ekki bara heima, ég vinn hvort eð er þar líka.

Hafðu það gott dúllan mín

Anna Guðný , 11.5.2008 kl. 16:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband