The Nanas

Þar sem ég hef voða lítið að segja vil ég fræða ykkur örlítið um eina af uppáhalds hljómsveitum mínum.
The Nanas er hljómsveit skipuð af Guðrúnu Láru Alfredsdóttur og Arndísi Hreiðarsdóttur, betur þekktar sem Nana ( Guðrún ) og Dísa ( Arndís ).
Ferill þeirra er nokkuð fínn og gæti verið að þið kannist við Nönu úr síðustu Idol seríunni sem var 2005 - 2006, hún var með þeim langbestu þar og ég er nú frekar þakklát að hún hafi ekki unnið það þó hún hefði vel getað það.Grin
Þær hafa komið fram á Gay Pride og ég held að fólk hafi hrifist mjög mikið af þeim þar, enda feikna flottar stelpur þarna á ferð!

Ég hitti þær eftir Idol þátt sem ég fór með vinkonum mínum Salóme og Rakel og finnst mér af þeim hittingi að dæma þær æðislegar báðar tvær.

Þið getið heyrt tónlistina þeirra á síðunni þeirra; www.myspace.com/thenanas

Flottar stelpur sem við munum áreiðanlega heyra vel frá í framtíðinni.


Knús á ykkur fólk!Heart



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Knús til þín snúllan mín.
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.5.2008 kl. 20:13

2 Smámynd: Brynja skordal

já þær stöllur eru að gera góða hluti í tónlistinni Góða nótt sæta skvís

Brynja skordal, 9.5.2008 kl. 01:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband