Ættfræði..

Undanfarin nokkur ár, eða frá 2004 - 2005 hef ég mikið verið að grúska í ættinni minni í móðurætt. Ég hef fengið hin ýmsu svör frá hinum ýmsu ættingjum bæði skyld mér í gegnum ömmu og afa.
Það gekk upp og ofan oft á tíðum og hef ég ekki verið í miklu sambandi við flest þetta fólk, en þó hef ég kynnst tveimur frænkum, önnur er hérna á bloggvinalistanum.
Ég hef þó voða lítið heyrt frá þeim tveimur sökum anna og þessháttar.
Ég hef oft fengið þvílík harðmæli gagnvart því að ég vildi kynnast ættingjum mínum 12 - 13 ára gömul. Eldra fólk sem sagðist ekki vilja tala við mig en alltaf hélt ég áfram að grúska í ættinni. Ég fékk reyndar yfirdrifið nóg af því að fá mörg nei eða glata sambandinu, svo ég er voða lítið í þessu í dag.

Ég ef þó líka verið að finna ættingja sem ég hef alltaf vitað að væru þarna, t.d. reyni ég að vera í góðu sambandi við frændfólk mitt í báðum ættum sem ég hef alltaf þekkt og er að taka upp á því að tala við það bara þá og þegar.

Fólki finnst oft skrítið að unglingar vilji ekki hitta fjölskyldu sína, ættingja og ömmu og afa. En hjá mér er þetta allt þveröfugt við það, mér finnst æðislegt að hitta afa mína og ömmur enda yndislegt fólk þar á ferð. Alltaf þegar maður kemur til þeirra er alltaf gott að borða og eins og ég hef sagt svo oft hef ég ekki fundið og mun ekki finna betri kokk og bakara en hana Róslín ömmu mína. Uppáhalds kökuuppskriftina á hún, það er heit súkkulaðikaka sem er gott að hafa ís með.

Ég vonandi mun reyna að hitta sem flesta í bænum þegar ég á leið þangað einhverja helgina, yndislegt fólk allt!

Knús á ykkur inn í nóttina!Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Skráðu þig inn í Íslendingabók, þar færðu allt að vita.
Knús til þín inn í draumgóða nótt.
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 7.5.2008 kl. 21:23

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég var einmitt að grugga þar inni
Knús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 7.5.2008 kl. 21:28

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Jón Magnússon og Helga Guðnadóttir sem voru uppi á 18. öld eru sameiginleg forfaðir og fórmóðir okkar. Við erum býsna fjarskyldar! .. Ég hef svaka gaman af því að grugga í ættfræði og finnst voða gaman að hitta sem flesta úr fjölskyldunni!

Hafðu það gott um Hvítasunnuna,  er að stinga af til Kaupmannahafnar, einmitt með stórum hluta fjölskyldunnar að hitta bróður minn og fjölskyldu.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 7.5.2008 kl. 23:41

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sæl frænka!.  Jú, jú, við erum frænkur í 10. lið og sameiginlegir forfeður okkar voru hjónin, Jón Loftsson og Sigþrúður Einarsdóttir, sem bæði voru fædd árið 1630

Ætlar þú að bæta mér á "jólagjafalistann"?

Sigrún Jónsdóttir, 7.5.2008 kl. 23:50

5 Smámynd: Linda litla

Gluggaðu betur í íslendingabókina og ath hvort að við séum skyldar.

Linda María Jónsdóttir 2512714539

Linda litla, 8.5.2008 kl. 01:05

6 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk fyrir þetta fjarskyldu frænkur mínar, ég get sagt ykkur það að ég gat ekki annað en brosað við að lesa línurnar frá ykkur!

Hann Jón yngri Rögnvaldsson var mikilmenni Sigga!

Ég lofa þér því Helga mín

Jón Magnúsar og Helga Guðna! Ég man ekki eftir þeim Jóhanna, en það hlýtur að hafa verið gáfað fólk!
Hafðu það sem best með fjölskyldunni út í Köben!

Það er ekki svo fjarskylt Sigrún, ekki langt frá því!
Æ, ég held ég gefi nógu margar jólagjafir, sendi þér bara jólahugskeyti!

Ég kann ekki að telja ættliði Linda, en 4 langafi minn upp og 5 langafi þinn upp var Ísleifur Hafliðason f. 1756 og d. 2. ágúst 1839!

Ætlið þið að fara að rífast um hvorri ég á að senda jólagjöf eða eitthvað slíkt Hallgerður?
Já mæður okkar voru/eru kynsystur, og ég hélt að við værum það líka??

Knús á ykkur allar!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 8.5.2008 kl. 15:03

7 Smámynd: Linda litla

Þá eru væntanleg ég og annað foreldrið þitt fjórmenningar....

Hæ frænka

Linda litla, 8.5.2008 kl. 15:30

8 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Mest skyld mér fyrir utan þrjár í bloggvinalistanum!
Hæ Frænka

Róslín A. Valdemarsdóttir, 8.5.2008 kl. 15:46

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Við erum öll skyld meir eða minna.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.5.2008 kl. 19:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband