Heppnin fylgir manni!

Ég hef verið að kvarta undan því að enginn lesi bloggið mitt. Reyndar bara við sjálfa mig, en það er allt annað. Mér finnst rosalega margir hafa komið inn á síðuna mína í gær, s.s. 31. mars. 95 gestir og 93 IP tölur sem lét mig hækka upp í töluna 280! Nokkuð myndarlegt bara.

Æfing var í kvöld á Rocky Horror og þar var í einu hléinu verið að stríða mér allmikið, og ég var búin að hlæja svo mikið, að ég var farin að gráta í bókstaflegri merkingu! Ég gat ekki andað og það komu bara tár í staðin, Elvar Bragi, Sólveig og Þórður voru öll að ulla á mig og purra með tungunni og flestir hinir horfðu á. Þarna sat ég og grét úr hlátri, og því að Elvar var búinn að vera frekar vondur við mig ( eða hann var búin að vera að stríða mér svo mikið).

Í dag er góður dagur, ég fékk e-mail um að ég fái að rita hjá einu blaðinu og að ég fái mjög góð laun fyrir. Ég fékk þessa fregn í dag, óendanleg hamingja barðist í hjarta mér og hér sit ég við tölvuna full gleði og tilhlökkunar!!!!Grin Grin

Knús, nú fer ég að sofa!Heart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halla Vilbergsdóttir

til lukku sæta...;)

Halla Vilbergsdóttir, 1.4.2008 kl. 01:35

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Hvaða blaði? Til hamingju.  Ég er "leynivinur" ennþá.

Sigrún Jónsdóttir, 1.4.2008 kl. 01:47

3 Smámynd: Anna Guðný

Rosalega til hamingju með . Annars er samt 1.apríl . Eins gott að passa sig. Guð hvða ég veit að ég á eftir að gleyma því  og einhver á eftir að gjörsamlega senda mig eitthvað stórt.

Anna Guðný , 1.4.2008 kl. 07:49

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Til hamingu knús inn í daginn.

Kristín Katla Árnadóttir, 1.4.2008 kl. 11:44

5 Smámynd: Brynja skordal

1 apríl ekki satt

Brynja skordal, 1.4.2008 kl. 14:08

6 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk fyrir allar!

Sigrún ég má ekki segja það strax, læt ykkur vita þegar ég byrja! En þú ert nú meiri leynivinurinn - sæl og blessuð! Ein af þeim, þar fann ég a.m.k. eina!

Haha, þú ert æðisleg Anna Guðný, bannað að láta plata sig í dag!

Helga, þakka þér fyrir það

Það er jú 1. apríl, en ég samt er mjög ólygin manneskja Brynja mín! Ég kann ekkert að ljúga, svo að það er eins gott að treysta mér í þetta skipti. Ég var nefnilega á leikæfingu þegar mér barst þetta e-mail, svo að ég gat ekki sagt þetta fyr en í gærkvöldi!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 1.4.2008 kl. 14:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband