31.3.2008 | 17:07
Náttúrfræði í dag, ekki í þá daga!
Ég ætla að deila með ykkur þessari setningu, sem við glósuðum í dag í náttúrufræðitíma. Mér finnst ekki von, né furða hvað mér gengur yfirleitt illa á þessari námsbraut. Enda þið sem eldri voruð, lærðuð nokkurn tíma þetta sem kallast náttúrufræði?
,, 1. Frævun frjókorn berst frá frjóhnappi frævils yfir á fræni á frævunni. "
Ég furða mig einnig á því hvernig ég gat skilið skrif mín. En þessa setningu get ég bara alls ekki sett í samhengi. Ég held ég viti hvað þetta þýðir, en ég geri mér ekki alveg grein fyrir því. Að læra um blóm og víxlun þeirra er eitt leiðinlegasta nám og minnsti tilgangur með. Skilið þið sem eruð komin yfir fimmtugt þetta?, eða þið sem eruð yfir 25 ára?
Ef ég fengi að ráða, þá myndi ég ekki vera í þessu fagi, þar sem ég skil ekki eitt einasta orð í þessum blessuðu bókum, og þó ég glósi upp úr pínu litlum kafla yfir 4 troðfullar blaðsíður og fæ rétt yfir fimm þá skil ég ekki hvað ég á að gera.
Ég er farin að fylgjast með Rocky Horror á Youtube
..
Knús
,, 1. Frævun frjókorn berst frá frjóhnappi frævils yfir á fræni á frævunni. "
Ég furða mig einnig á því hvernig ég gat skilið skrif mín. En þessa setningu get ég bara alls ekki sett í samhengi. Ég held ég viti hvað þetta þýðir, en ég geri mér ekki alveg grein fyrir því. Að læra um blóm og víxlun þeirra er eitt leiðinlegasta nám og minnsti tilgangur með. Skilið þið sem eruð komin yfir fimmtugt þetta?, eða þið sem eruð yfir 25 ára?
Ef ég fengi að ráða, þá myndi ég ekki vera í þessu fagi, þar sem ég skil ekki eitt einasta orð í þessum blessuðu bókum, og þó ég glósi upp úr pínu litlum kafla yfir 4 troðfullar blaðsíður og fæ rétt yfir fimm þá skil ég ekki hvað ég á að gera.
Ég er farin að fylgjast með Rocky Horror á Youtube

Knús

Athugasemdir
31 árs hérna og pass.......
Halla Vilbergsdóttir, 31.3.2008 kl. 17:22
hHahaha, gott svar, þetta er alveg svakalegur lærdómur, ég er oftast að fá undir 5!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 31.3.2008 kl. 17:27
Jahérna, og mín er að fara í þinn bekk á næsta ári. Mikið hlakka ég til.
En svona eins og þú þá skil ég nokkuð ferlið en orðin maður
Anna Guðný , 31.3.2008 kl. 17:29
Mikið hlakkar þig til að hlusta á eilífðarsuð!
Ég er alveg bara hrikaleg í þessu!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 31.3.2008 kl. 17:32
Mín stelpa er í 7 bekk og hún var að læra undir próf og það var úr bókinni líkami mannsins.Ég hef sjaldan hlegið eins mikið inn í mér þegar ég kom að henni lesa uppúr henni fyrir bróðir sinn 9 ára og vin hans...hvernig börnin voru búin til..;) haha svo var mynd af konu fæða og kollurinn komin hihi garg minn var brjálaður og neitar sko að hafa komið þessa leið;)
skemmtilegt námsefni á þessum árum hehhehe
Halla Vilbergsdóttir, 31.3.2008 kl. 17:36
Nei ans .......! Ég var líka í þeirri bók, og allir bara OOOJ þegar þurfti að opna á þessa síðu...
Róslín A. Valdemarsdóttir, 31.3.2008 kl. 17:38
Æ mér fannst nú náttúrufræði afar leiðinleg er ég var í skóla, enda held ég að hún hafi verið nokkuð ólík því sem er í dag.
Þessi setning snúlla er ekkert svo skrýtin bara smá. Það gerir ekkert til þó þú fáir bara fimm í þessu prófi, en þú ferð sem sagt ekki á náttúrufræðibraut er þú byrjar í framhaldsskóla?
Knús Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.3.2008 kl. 18:11
Nei, alls ekki Milla mín, það yrði það síðasta sem ég myndi fara út á. Ég ætla á upplýsinga- og fjölmiðlabraut í Borgarholtsskóla, svo í Kvikmyndaskóla Íslands, eftir nokkur ár í vinnu ætla ég svo að taka stjórnmálafræði!

Knús á þig Milla mín
Róslín A. Valdemarsdóttir, 31.3.2008 kl. 18:15
Heyrðu Sigga!!!!

Einmitt, við gróðursettum páfagauksfræ í dag, og ætlum að fylgjast með því!!
Mér finnst það bara ósköp lítið, ég hefði þó verið til í að læra þetta ekki! Bara eilífðar útúrsnúningur á við tvo hunda, svo ég segi nú ekki meira!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 31.3.2008 kl. 18:17
hahahhahah snillingur páfagauksfræ ;) garg
Halla Vilbergsdóttir, 31.3.2008 kl. 18:39
Uss mér fannst náttúrufræðin leiðinleg

Kristín Katla Árnadóttir, 31.3.2008 kl. 19:25
Ertu að fara að rækta páfagauka ?? hehe
Heyrðu ok, ég er 36 ára....... hvað þýðir "frjókorn berst frá frjóhnappi frævils yfir á fræni á frævunni".
Reyndar þegar ég var í skóla þá var ekki kennd náttúrufræði í þeim skóla, en ég er reyndar uppalin á Hellu.
Linda litla, 31.3.2008 kl. 21:25
þetta er eitthvað býflugan og blómið ævintyri.......frævill og frævan eru trúlega einhverskonar par...svo frjókornið krílið...;) þá mundi frjóhnappur og fræna vera du du og do do....nei maður spyr sig
Halla Vilbergsdóttir, 31.3.2008 kl. 21:57
Aldrei þoldi ég náttúrufræði en ég held að þeir mættu fara að sleppa þessu úr námsefninu því að þetta var notað hérna í denn í staðin fyrir kynfræðslu, þú veist býflugan og blómin!
Huld S. Ringsted, 31.3.2008 kl. 23:07
Þetta er nú ekki kynfræðsla! Þetta er frjóvgun blóms og hvernig fræ verður til!

Takk kærlega fyrir öll innlitin
Róslín A. Valdemarsdóttir, 31.3.2008 kl. 23:30
Góða nótt sæta blóm
Brynja skordal, 1.4.2008 kl. 00:10
Góða nótt

Róslín A. Valdemarsdóttir, 1.4.2008 kl. 00:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.