30.3.2008 | 20:57
Mannaveiðar, Kristin trú, Nafnlausir bloggarar og frægðarför!
Ég hef séð smá part af Mannaveiðum, ég vil ekki vera leiðinleg. En þessi þáttur heillar mig ekki örlítið. Sumir leikarar eru hrikalega lélegir, sum myndskotin eru það sömuleiðis. Liturinn á myndinni er ekki góður og ég get lengi haldið áfram að telja. Þetta eru bara mínar skoðanir á þessum þætti, en svo finnst mér Hilmir Snær alltaf jafn flottur
.
Kristin trú. Þegar ég vaknaði í dag heyrði ég í sjónvarpinu frammi. Ég sat við tölvuna í örlítið lengri tíma, gekk svo fram og settist með mömmu fyrir framan skjáinn. Það var stillt á Ríkissjónvarpið og þarna var heimildarmynd um Guðstrúna í Bandaríkjunum. Sumt fannst mér alveg vera komið nóg af, og fólk hræddi mig bara á tímapunkti. Það að vera trúaður, er ekki skilda til að tilbiðja Guð á hverjum degi, gefa honum sál manns. Ég trúi þó á Guð, en ég fer ekki út í oföfgar, vegna þess að þetta er trú, og ég trúi að Guð hafi sent Jesú Krist til jarðar til að hjálpa fólki, færa þeim kærleika.
Nafnleysi á bloggi ætti ekki að koma okkur við. Þó þetta og hitt fólk komi illa fram án nafns, eru líka fleira af fólki sem kemur undir nafni og kemur verr fram en það, og því er skítt sama, við það að vera kannski að brjóta niður sjálfstraust annarra. Bloggarar sem koma nafnlausir fram hafa allir sína ástæður hvers vegna ekki, gæti verið t.d. minnimáttarkennd. Ég er alfarið á móti því að fólk vilji hætt að kíkja inná síður nafnlausra, og hætta að veita þeim einhverja athygli. Þetta eru menn líka, sem hafa kannski gengið í erfiðari hluti en við sjálf, og við eigum að virða þeirra skoðanir á meðan þau eru ekkert ljótt að segja.
Frægðarför mín, sem er rétt að hefjast, magnast með tímanum. Ég ætla mér, með fullri virðingu fyrir sjálfri mér, að komast á toppinn, og að fólk muni nafn mitt. Ýmist fyrir leik og störf, mig langar rosalega að gera svo margt. Ég byrja hér á blogginu, vonandi fæ ég pláss hjá Evu Maríu, því að það mun opna margar leiðir vonandi. Ég hef lengi spáð í hvað mig langar til að verða, en ég hef bara enga ákvörðun tekið og vil byrja á þessu öllu saman. Við lifum aðeins einu sinni, á þessum stað í þessu skinni! Ég vil því gera sem mest fyrir samfélagið okkar og koma mörgu á hreint, mig langar til að verða framtíð Íslands, sjá mig í stjórn í sjónvarpinu að berjast fyrir Ísland, hvað sé því best.
Margir telja mig kannski vitlausa að skrá mig hjá Landsambandi Ungra Frjálslyndra, en það er besta byrjunin fyrir mig, að ég held og viti. Landsamband Ungra Frjálslyndra getur opnað margar leiðir, og þess vegna er gott að koma sér fyrir í þeim hópinum. Eins og flestir vita ætla ég að fara í leiklist þar á undan
..
Ég vona að það hafi verið varið í þessi skrif mín, en núna er ég farin að sníkja ÍS!
Knús

Athugasemdir
Ég slökkti á mannaveiðar ömurlega leiðinlegur, svo ég tali nú ekki um þennan trúarþátt, sló hann strax út vissi hvernig hann mundi verða.
Róslín mín þú ert bara á réttri leið, ef þú svo skiptir um skoðun þá er það bara allt í lagi, en við munum ætíð vilja fylgjast með þér, því þú ert svo frábær stúlka.
Knús á þig Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 30.3.2008 kl. 21:07
Þessi þáttur er ekkert til að hrópa húrra fyrir, svo mikið er víst. Trúarþátturinn, mamma sat yfir honum, segjandi mér á þriggja mínútna fresti hvað hún væri reið yfir þessu!

Þakka þér fyrir Milla mín
Knús og eigðu góða nótt
Róslín A. Valdemarsdóttir, 30.3.2008 kl. 21:09
hæ takk firir að vera bloggvinur minn.Kormákur
Korri cool (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 21:12
Mín var nú bara ánægjan
Róslín A. Valdemarsdóttir, 30.3.2008 kl. 21:21
ég ætla bara seigja þér mína skoðun hérna á mannaveiðum mér finnst þetta geðveikt góðir þættir þó þeir séu kannski ekki neitt vel leiknir en alltaf gaman að horfa á svona íslenskt glæpa því menn eru alltaf að reina herma svo mikið eftir C.S.I eða einhverju þannig sem er bara fyndið
Hulda Björg Sigurðardóttir, 30.3.2008 kl. 21:28
Mér finnst þeir glettingslega leiðinlegir Hulda
Róslín A. Valdemarsdóttir, 30.3.2008 kl. 21:34
halló halló og takk fyrir innlitið! Fín færsla hjá þér.. því miður sé ég ekki þessa þætti.. kannski ef þeir koma á youtube
Katan , 30.3.2008 kl. 21:40
Takk fyrir Katrín. Þættirnir eru ekki þess virði samt
Róslín A. Valdemarsdóttir, 30.3.2008 kl. 21:45
hehe þú ert mögnuð en hvar eru þessir þættir;)
Halla Vilbergsdóttir, 30.3.2008 kl. 21:52
Það er ágætt að aðrir fatti að ég sé mögnuð
!
Þessir þættir eru sýndir á sunnudögum á Ríkissjónvarpinu.....
Róslín A. Valdemarsdóttir, 30.3.2008 kl. 21:54
Ég hef ekki verið svo fræg að sjá þessa þætti, mér leiðist sjónvarp.
Vonandi á draumurinn eftir ða rætast og þú að komast í þáttinn hjá Evu Maríu.
Linda litla, 30.3.2008 kl. 22:03
Ég horfi einmitt voðalega lítið á sjónvarp, ég næ ekki að halda höfðinu að því!
Vonandi já, takk fyrir. Ég kjafta einskis, gæti verið að ég hitti hana næst þegar ég fer í bæinn bara í spjall
!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 30.3.2008 kl. 22:08
Nei, ......skotinn! Hvernig eiginlega í ósköpunum fór ég að kjafta svona stórt frá
Róslín A. Valdemarsdóttir, 30.3.2008 kl. 22:09
Hæ hæ Róslín mín!
hehe nei nei, en samt bara smá! 
Þú ert alveg æðisleg stelpa og þú getur gert allt sem þig langar til að gera... mundu það! Áfram þú!!!!
Ég er enn í fýlu að þú komst ekki að hitta mig
Guðbjörg Valdís (IP-tala skráð) 30.3.2008 kl. 22:24
Helga, ég held að flestir séu sammála okkur! En þakka þér æðislega fyrir, ég fer líka ekki að ljúga um sjálfa mig ( allavega er þetta satt í mínum augum
). En takk enn og aftur fyrir þessi fallegu orð, ég met þau til mikils
Knús og góða nótt
..
. En það var þinn missir að láta mig ekki fá númer eða heimilisfang áður! Ég kem næst þegar ég á leið hjá 
!
Guðbjörg mín, þakka þér fyrir kærlega
Róslín A. Valdemarsdóttir, 30.3.2008 kl. 22:31
Ég horfi aldrei á RUV, veit ekki einu sinni hvað er á dagskrá þar!
ég er nú alveg sammála þér með nafnlausa bloggara en það er þessir sem eru ekki bloggarar sem vaða yfir allt og alla með dónaskap og svívirðingum sem ég þoli ekki, enda er ég búin að loka fyrir þá hjá mér. Ég á nokkra bloggvini sem eru nafnlausir og finnst mér þeir fínir 
Huld S. Ringsted, 30.3.2008 kl. 22:34
Huld, reyndar horfi ég voða lítið á RÚV, finnst það bara vera peningaeyðsla, en þetta þarf maður að þola. Já, ég hef ekki enn lent í þessum slæmu nafnlausu, enda enginn sem kemur með eitthvert skítkastið á mína síðu. Ekki enn allavega.
)
Sigga mín, þú ert greinilega alls ekki ein um það! Ég held reyndar að þau séu bara að reyna að toppa þættina á stöð 2 sem voru hérna í byrjun árs. Mér fannst þeir rosalega flottir spennuþættir, Pressa hét hann auðvitað. Æi, það þarf bara að segja sumum leikurum upp, og fá betri í staði, annað er það ekki. Leikarar eru ekki settir í það hlutverk að sitja og fylgjast með, þeir þurfa að vera aktívir allan tíman, annars dregst athyglin að þeim ( þetta lærir maður með alvöru leikstjóra, Jón Inga og Laufeyju Brá
Knús
Róslín A. Valdemarsdóttir, 30.3.2008 kl. 22:44
Ég er alltaf ég, ég lýg aldrei, eða mjög sjaldan, þar sem ég kann það ekki
Róslín A. Valdemarsdóttir, 30.3.2008 kl. 23:54
Ég er búin að vera áskrifandi að Stöð 2 í morg ár an svo ákváðum við að hætta og núna er annar mánuðurinn að enda í engin Stöð 2. Og ég viðurkenni að þetta var bara erfitt til að byrja með. Ég t.d. var veik um daginn og lá fyrir í meira en einn sólarhring og ég var búin að fara marga hringi á fjarstýringunni og endaði oftast á Omega. En ég er bara að verða ánægð með að vera ekki með Stöð 2. Þessar 11.000 krónur sl. tvo mánuði sem hefðu farið þangað fara frekar í sólarlandaferð í maí. Og þó að börnin séu ekki alveg ánægð þá þurfa þau jú að læra að það er ekki hægt að fá allt. Til að gera eitthvað mikið eins og að fara í utanlandsferð getur orðið til að það þurfi að klíða af á öðrum. Og annað sem ég átti ekki von á. ég verð ánægðari með Ruv með hverju deginum. Og Mannaveiðar, sá fyrsta þáttinn. Var ánægð með hann og beið spennt eftir þessum í kvöld, gat svo ekki horft á hann en heyrði í eignmanninum utan af sjó áðan og hann er mjög ánægður með þáttinn. Enda engin Stöð 2 til að glepja þá þar. En dóttir mín sem er ári yngri en þú hefur engan áhuga og það skil ég. Þannig að kannski eru þessir þættir "bara svona fullorðins" og þeir sem hafa ekki áhuga séu svona ungir í árum ja eða anda. En það þýðir þá líka að ég sé orðin gömul. Ja hérna nú hætti ég að bulla.
Anna Guðný , 31.3.2008 kl. 01:46
Held ég verði að fara að nota púkann, flýti mér of mikið. En þarna átti auðvitað að vera klípa af en ekki klíða.
Anna Guðný , 31.3.2008 kl. 01:49
Hvaða hvaða ... þessir þættir eru nú ekki alveg jafn slæmir og þið viljið nú meina .. skil nú bara ekkert í þessu .. en svona fyrir utan það að það er nú ákveðin manneskja sem þurfti endilega að segja mér hver morðinginn væri .. Það er það eina sem hefur eyðilagt þættina fyrir mér .. Ekki svona neikvæð Róslín...
Sædís (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 08:54
Gat ekki horft á Mannaveiðar ég fór snemma að sofa
Þú átt eftir að verða fræg það er ég viss um þú ert frábærRóslín mín.
Kristín Katla Árnadóttir, 31.3.2008 kl. 11:18
Sá þáttur sem ég horfið smá á var svo neyðarlega illa gerður að ég bara varð að horfa á eitthvað annað.
DoctorE (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 11:48
Bara að bæta við að guð færði heiminum ekki kærleika, lestu biblíu og kynntu þér málið hans guðs sem elskar mest að drepa, hann drap meira að segja sjálfan sig, hann er jú sonur sjálfs síns.
Kynna sér málið og þá muntu sjá að engir guðir eru til, trú er stjórntæki
DoctorE (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 13:22
Anna Guðný, þetta er margt satt hjá þér, en ég held að þú hefðir sagt Ríkissjónvarpinu upp í staðin fyrir Stöð 2 ef svo væri bara hægt! En það er nú góður peningur sem þú sparar á þessu
. Sólarlandaferð er meira virði en stöð 2!
!
! Þú ert bara með slæman smekk, enda framtíðar sálfræðingur
!!!

.
Takk fyrir falleg orð Hallgerður
Hver sagði þér frá því Sædís? Pottþétt Eva eða Siffi
Ég hefði viljað hafa farið snemma að sofa, þá væri ég ekki þreytt núna Katla! En takk æðislega
DoctorE, einmitt það sama og mér fannst. En mér finnst ekki réttlátt að segja svona, en ég virði þína skoðun. En mín er sú að Guð sé sá sem frelsaði mannkynið ( eða kannski samt ekki alla..).
Róslín A. Valdemarsdóttir, 31.3.2008 kl. 15:07
1. Þessir þættir eru svo kjánalega gerðir að það eitt gerir þá fyndna.
2. Þá átt pottþétt eftir að vera fræg. Við vitum það báðar. Og ef það tekst ekki fyrir fertugt þá hleypur þú bara alsber á 40 ára afmælinu þínu beint yfir miðjan landsleik og þá vita allir hver þú ert.
3. Þú átt eftir að finna einhvern í þínum bæ til að bjóða fram í næstu bæjarstjórnarkosningum fyrir FF.
Halla Rut , 1.4.2008 kl. 00:01
Akkúrat!
! DJÓK! Nei ég hef ekki hugmynd hver sú/sá ætti að vera.
Heyrðu, ég get hlaupið inn á völl, en ekki alsber! Neineineineinei! Ég vonandi verð fræg fyrir eitthvað, samt gott!
Ég af öllum, ég hef ekki hugmynd hver það gæti verið. Flestir sem ég þekki eru vitlausir
Róslín A. Valdemarsdóttir, 1.4.2008 kl. 00:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.