30.3.2008 | 14:37
Von um berdreymni
Ég sofnaði seint í nótt, en þegar ég vaknaði mundi ég draum minn. Tók þó smá tíma en hér kemur hann.
Við sátum allir krakkarnir í bekknum á gólfinu í einhverju húsi, þarna voru upptökuvélar fyrir sjónvarpið. Eva María var að spurja spurninga, og sat Sæþór ( sá sem veit allt....) hjá henni að svara spurningum. Hann kláraði og þá spurði Eva María hver vildi vera núna, ég rétti upp hönd og hún var ekki alveg að gefa það upp á bátinn, þó enginn annar var með upp rétta hendi. Hún benti svo á mig, sagði að þessi spurningaleikur væri þess virði, því ef ég myndi vinna fengi ég að fara í alvöru sjónvarpsþátt, man ekki hvað hún sagði að hann héti. Hún sagði mér einnig að þessi spurningaleikur myndir bara ganga frá kl. 10 til kl. 11. Ég var að æfa mig við hinar ýmsu spurningar, svo fór sá sem var að hjálpa mér og allt í einu voru þarna fólk úr einhverjum bíómyndum!!! ( ekki eins og mig dreymi það á hverjum degi!!). Sem var alveg stórfurðulegt, þarna mátti m.a. sjá Frankenstein og einhverja þvílíka leikkonu. En þau vildu ekki hjálpa mér með spurningarnar.
Ég vona að þetta í byrjun draums verði að veruleika, að ég fái að hitta þessa einlægu manneskju, þó bara til að tala við hana.
Í dag fer ég ekki á leikæfingu fyr en um 17.00 leitið, og verð alveg örugglega fram yfir kvöldmat. Ástæðan á bakvið þennan tíma er sú að það voru nú ekki allir edrú, flestir að drekka, nema við Grunnskólastelpurnar auðvitað.
Og eins og ég segi, enga feimni!
Eigið góðan dag,
knús
Athugasemdir
Hef stundum heyrt um undirmeðvitundar-drauma, það er þegar eitthvað býr fast í meðvitund fólks þá dreymi það um málið, slakaðu bara á snúllan mín,
það kemur það sem koma skal.
Knús Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 30.3.2008 kl. 15:12
Ég er búin að skoða með nöfnin Sigga og öll bera þau gæfu.
..

Milla, ég hef líka heyrt um þetta, hefur líka oft gerst fyrir mig. Ég slaka eins mikið á og ég get
Ef þið hafið áhuga þá getið þið lesið um drauma hér http://www.visindavefur.hi.is/svar.php?id=5756 .
Knús
Róslín A. Valdemarsdóttir, 30.3.2008 kl. 15:18
Velkomin á fætur, þú hefur haft það af. Ég og sonur minn vorum að koma úr vel heppnaðri húsdýragarðsferð, þetta er yndislegur dagur.
Njóttu dagsins í botn, hann er svo yndislegur.
Linda litla, 30.3.2008 kl. 16:47
Það er rétt, ég hafði það af!
Langt síðan maður hefur farið í húsdýragarðinn, hvað sögðu selirnir gott?
Ég var að koma af leikæfingu, svo njóttu kvöldsins!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 30.3.2008 kl. 20:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.