26.3.2008 | 18:51
Súpukúr NEI TAKK!
Mamma ætlar að vera voða ströng núna, allir hérna heima mega ekki láta eitt óhollt ofan í sig á næstunni. Ótrúlegt hvað hún er meiriháttar góð mamma mín.
Skólinn byrjaði í dag, og ef þið lituð á klukkuna þegar ég bloggaði í gærkvöldi ( mæli ekki með því samt ), þá fattið þið að ég mætti með ljótuna í skólan, mamma sagði að ég væri ekki sæt í dag
, hún er svo góð hún yndislega mamma mín. Ég fór í handmennt í morgun, leðurgerð. Ég með mína fullkomnunaráráttu í morgunsárinu, og ljótan meðfylgjandi því, blandaðist ekki vel saman. Held meirað segja að flestir hefðu annað hvort getað hlegið að mér eða verið hrædd. Hitti svo minn elskulega Rafn eftir langa, langa bið. Ekkert smá gott að sjá hann, enda er mér svo mikils virði.
Rocky Horror verður frumsýnt eftir tvær vikur og einn dag, ekki meira né minna en það. Æfingar verða stífar að ég held næstu tvær vikur, annað hvort gaman eða leiðinlegt. Ég ætla að ákveða að þetta verði gaman, því þá mun ég skemmta mér rosalega vel.
Ég bið að heilsa ykkur, heyrið kannski í mér í kvöld!
KNÚS

Skólinn byrjaði í dag, og ef þið lituð á klukkuna þegar ég bloggaði í gærkvöldi ( mæli ekki með því samt ), þá fattið þið að ég mætti með ljótuna í skólan, mamma sagði að ég væri ekki sæt í dag

Rocky Horror verður frumsýnt eftir tvær vikur og einn dag, ekki meira né minna en það. Æfingar verða stífar að ég held næstu tvær vikur, annað hvort gaman eða leiðinlegt. Ég ætla að ákveða að þetta verði gaman, því þá mun ég skemmta mér rosalega vel.
Ég bið að heilsa ykkur, heyrið kannski í mér í kvöld!
KNÚS

Athugasemdir
Held þú ættir að fara snemma að sofa í kvöld stelpa.
Nei, svona í alvöru hef grun um að fleiri en þú hafi farið með ljótuna í skólann í morgun. Eitthvað svoleiðis var í gangi hér líka. Var að hugsa um það hérna um hálf átta leytið í morgun að fara aftur inn í rúm. En svo voru allir komnir í gott skap eftir skóla. Allavega voru eitthvað um 7 aukabörn hér í dag og allir hlæjandi(svona að mestu)Hafðu það gott i kvöld.
Anna Guðný , 26.3.2008 kl. 19:15
Hvað segir þú súpukúr og ekkert óhollt, mamma þín er að undirbúa ykkur undir kreppuna
ekkert svín eða gratíneraðar kartöflur.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.3.2008 kl. 19:58
Mínar tvær fóru sko með ljótuna í skólann í morgun og skapið eftir því þegar ég vakti þær, þær eiga gribbu fyrir mömmu
Huld S. Ringsted, 26.3.2008 kl. 21:04
Flott hjá henni mömmu þinni það var sama hér strákurinn minn fór alltof seint að sofa hann var svo lengi símanum að tala við þú veist.
Knús á þig
Kristín Katla Árnadóttir, 26.3.2008 kl. 21:14
Ég reyni að fara að sofa snemma Anna Guðný! Ég held að ljótan hafi fylgt öllum í skólan, vinnuna og allt bara í morgun




....
!
! En ég veit já, unglingar í dag...









( þið fáið meirað segja tíu hjörtu!!)
En rosalega eruð þið allar sammála eitthvað núna, ég er ekki alveg sátt með ykkur!
Er það ekki ég sem á að hugsa um að grenna mig ef mig langar það eitthvað? Jú, Ég hélt það einmitt líka!
Milla, ég hleyp bara út í haga og næ mér í nokkur svín og kartöflur ( þó það sé ekki svo létt )
Sigríður, þú hefðir bara átt að kæra þau fyrir að stela þínu "stikkorði"! Takk fyrir styrkinn líka, hahaha, ég er ekki ánægð
Huld, sko, ég er alveg viss um það að ljótan hafi fylgt landanum í morgun. Mömmur geta nú verið algjörar gribbur af og til
Katla, ekki flott hjá mömmu minni! Ég fór nú ekki of seint að sofa vegna eitthvers svoleiðis, ég var bara aaandvakaaaaaaa
Knús á ykkur allar og takk fyrir innlitið
Róslín A. Valdemarsdóttir, 26.3.2008 kl. 22:56
Hvernig súpa er þetta örugglega Góð ef hún er holl
knús til þín sæta
Brynja skordal, 26.3.2008 kl. 23:22
Þar á meðal pakka-aspassúpa ( ekta mikið betri...) og núðlusúpan mín góða, með kjúklinga "bragði", chilli og krydd með!
( Heyrirðu það Milla, núðlusúpur eru nú svo ódýrar, góðar fyrir kreppuna!!)
Róslín A. Valdemarsdóttir, 26.3.2008 kl. 23:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.