TAKK MILLA :)!

Skólinn er á morgun og ég sit hér með disk af heitum núðlum fyrir framan mig, nýkomin úr sturtu. Ástæðan fyrir því að ég er nýkomin úr sturtu er sú að ég var á leikæfingu og núna eru rúmar tvær vikur í frumsýningu og maður verður að ná karakternum, ástæðan að ég sé að borða núna er líka vegna leikæfingunnar, maður verður óskaplega svöng eftir svona hamagang!
Hafið þið einhvern tíma lent í því ef þið og þegar þið borðið kjúklinganúðlusúpu að það leki úr nefinu á ykkur? Ég skal segja ykkur hvers vegna. Auðvitað ef þið setjið chilli-ið ofan í, þá er það ekki furða, hann er hrikalega sterkur! Annars veit ég enga aðra...
Ég er búin að æfa mig á trommurnar í dag og að mála líka, sem er hreint afrek á einum degi.

Eins og margir vita núna var skorið söngvara Dalton aftan á hnakka hérna um helgina, ég ætla að leiðrétta fréttina af Vísi sem ég sá, að hann var ekki að syngja hér. Þeir voru á leiðinni austur að spila, stoppuðu hér á balli. Hann var jú fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur, en það skal ég segja ykkur að hann flaug aftur til baka til að spila á ballinu svo að það hefur ekki eyðilagt mikið fyrir honum.
Og vil ég biðja þá sem eru fljótir að dæma, að ekki eru allir hér á Hornafirði einskis nýtir, ég þekki mikið af dugnaðarfólki. Þessi skuggi leggst oft svo mikið yfir það fólk sem ber af, af þessum fáu "lögbrotum" sem framin eru hér.

Var allt í einu að muna hvernig fólk fór að "finna" mig á blogginu mínu. Það var mín kæra Milla sem fann mig, og bloggaði, um mig, sjáið hvað hún skrifar fallega um mig!!Blush mér þótti svo rosalega vænt um þetta. Síðan þá hef ég blómstrað ( þó ég segi sjálf frá ), og mannað mig upp í að kommenta hjá öðrum, ef ég hef eitthvað erindi til. Eignast marga ýmist flotta eða annað, bloggvini. Alltaf þegar ég get kíki ég og les hjá flest öllum þeim sem eru á blogglistanum mínum, stundum kíki ég líka útfyrir þann hring.

En það sem ég vil gera hér að lokum þessa blogg;

Takk æðislega Milla, þú færðir mér margt án þess kannski endilega að taka eftir því sjálf, enda er ég fyrst að fatta þetta allt saman núna, en takk æðislega Milla mín!Heart Heart Smile

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Róslín mín þakka þér sömuleiðis fyrir allt sem þú gefur mér.
Ég bloggaði um þig að því að ég heillaðist af þínum persónuleika, og þegar svona gerist hjá mér verð ég bara að tala um það.
Manstu hvað ég sagði, að vera alltaf fylgin sjálfum sér, en ef þú færð ekki móttakara fyrir hreinskilni þá sleppir þú bara því fólki.

Svo ætla ég að svara þínu bloggi hér að ofan, þú hefur aldrei verið ljót, þú ert algjör dúlla, það er engin ljótur.
Myndin af ykkur er æði.
Og hann Rafn þinn er bara flottur, það segja augun hans mér.

Þú veist að ef þið komið á Húsavík þá er skyldumæting að Stórhól 51.
                                 Knús Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.3.2008 kl. 07:35

2 Smámynd: Anna Guðný

Fjölmiðlarnir sjá um neikvæðu fréttirnar, er það þá ekki okkar að reyna að koma með eitthvað jákvætt? Ég væri til í það, en þú? Viss um það.

Anna Guðný , 26.3.2008 kl. 10:18

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Milla: Það er satt, þegar eitthvað svona gerist hjá manni verður maður bara að tala um það, alveg ótrúlegt! Auðvitað man ég það!
Það eru bara allir misfallegir!  En þakka þér kærlega fyrir það Milla mín.
Ég veit, skyldumæting til þín þá, ég var nú búin að skipuleggja það! Núna er ég komin með húsið á hreint, svo það verður ekkert mál!
Knús

Anna Guðný: Jú, satt er það, ég væri til í það. Fjölmiðlar sjá oftast bara neikvæðu hliðarnar á öllu, sama hvort það sé gott eða vont!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 26.3.2008 kl. 17:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband