23.3.2008 | 23:35
Stjórnmál - það sem ég veit og veit ekki!
Ég er mikið fyrir að spá í hluti, hvernig allt virkar fyrir sig og af hverju þetta er svona, en ekki hinsegin. Núna síðastliðið hef ég verið að hugsa út í stjórnmálaflokka, ég veit ekki hvað helmingurinn af þessum flokkum heita og geri voða lítinn greinamun á þeim öllum, fyrir utan Frjálslynda flokkinn. Ég skil ekki af hverju það eru svona margir flokkar, sumir með mjög líkar stefnur, aðrir sem enginn kýs og aðrir sem flestir fyrirlíta.
Það er viss afstaða að hleypa fólki undir þeim aldri sem þarf að vera á til að komast inn í ungliða hreyfingu, það sýnir bara traust þess flokks, a.m.k. það ef það er vit í fólki. Ég vona að ég muni eiga mér einhverja framtíð í þessum flotta flokki, þar sem hlustað er á alla, á hvaða aldri sem er.
Það sem mér finnst þó fyndnast við þetta allt saman, öll þessi stjórnmál er það að ég veit ekki í hvaða flokki allir þessir menn (og konur) eru í sem stjórna. Þó man ég nokkur nöfn sem flestir ættu að vera farnir að kannast við úr sjónvarpi og fjölmiðlum, dæmi má nefna Þorgerði Katrínu, Siv ( bara því mamma heitir það ), Ingibjörg Sólrúnu ( ef hún er nú í flokki?), Vilhjálmur og bara nefnið það......
Mjög lítið er auglýst hvað flokkarnir styðja, heldur bara " kjósið þennan flokk og fáið þetta í staðinn", svona skólabókadæmi. Gott fyrir framtíðina að geta bara skilað öllum sínum málum á þannig málrómum.
Eftir að hafa skráð mig á þetta blogg og eignast þennan fína hóp af bloggvinum, hefur það svolítið stutt mig til þess að læra það sem kallast stjórnmálafræði, reyndar á eftir því sem ég stefni á. En stjórnmálafræði er svolítið sniðugt fyrirbæri, þar sem maður þarf oftar en ekki að standa fyrir framan fjöldann af fólki og segja ,, ágæti dómari, félagsmenn og aðrir góðir gestir ...", fjalla svo um hvað maður getur gert betur á Íslandi, sem er kannski manni sjálfri bara til sóma, eins og hefur gerst svo oft áður hjá þessu stjórnmálafólki.
Ég er enn að furða mig á þessu sem gekk á fyrir hundrað öldum -> http://roslin.blog.is/blog/roslin/entry/424096/
Þetta er allt að ganga í hringi, tíska!
Nú vil ég að Frjálslyndir fari að vekja fólk upp til lífsins og taki einhverjar frekari afstöður.

Athugasemdir
Hæ Róslín mín, ja nú þykir mér týra, strax byrjuð að hugsa um stjórnmál, en ekki veitir af ef þú ætlar að verða stjórnmálafræðingur.

Farðu nú samt ekki offörum það er svo margt annað sem þú ert að gera líka.
Láttu pólitíkina síast inn með andvaranum.
Frábært hjá þér að ganga í ungliðahreyfingu frjálssyndaflokksins, eins og þú segir þarft þú að byrja einhversstaðar og ég held að þú sér bara vel stödd með þessu unga fólki.
Eitt skal ég segja þér snúllan mín, að í öllum flokkum er misjafnt fólk það er ekki alltaf að gera allt eins og maður mundi gera sjálfur,
þá er gott að láta vita af því og farðu alltaf eftir hjartanu þínu og láttu aðra ekki stjórna í þér.
Þú talar um að nú viljir þú láta Frjálslynda fara að vekja fólk til lífsins, ég held að allir flokkar séu að því á sinn hátt, en fólk er mjög staðnað og það næst illa til þess, vona bara að þín kynslóð verði meira vakandi og láti ekki bjóða sér hvað sem er.
Allt fer í hringi í lífinu, það er rétt hjá þér, tískan, talsmátinn, uppahátturinn og bara allt. Róslín mín láttu aldrei stjórnast að uppastraumum lífsins,
því það er ekkert líf.
Takk fyrir mig. Knús Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.3.2008 kl. 07:52
Ég er eiginlega sammála hverju orði sem Milla segir. Þegar ég var að byrja að fá að kjósa vildi ég líka fá að vera með svo ég skellti mér í framboð fyrir Flokk Mannsins. Það var ótrúlega skemmtilegur tími og ég hefði ekki viljað missa af honum. Þá fannst mér ungliðahreyfingar annarra flokka alltaf reyna að vera "fullorðin" og svo "þroskuð" í stað þess að vera ungliðar. En með mínum flokki fannst mér ég mega vera eins gömul og ég var. En íslendingar voru ekki tilbúnir fyrir Flokk Mannsins þá og eru það ekki enn , að ég held. Og ég get alveg sagt þér að ég er í stökustu vandræðum í hverjum kosningum með það hvað á að kjósa. En til hamingju með að vera búin að finna stað sem þér finnst henta þér. Lofaðu mér bara einu, gefðu þér leyfi til að mega skipta um skoðun, ef það hentar þér.
Gangi þér vel.
Anna Guðný , 24.3.2008 kl. 11:19
Ég passa mig stelpur, ég fer hægt!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 24.3.2008 kl. 13:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.