23.3.2008 | 00:55
Femínismi :D ( mynd af settinu komin!)
Við mamma keyrðum heim með Lubba um kl. 3 leitið og ferðasagan er nú ekki frásögu færandi. Ég ætla að bíða og sjá hvort að mamma leyfi mér nú almennt að segja þessa klaufasögu, hún skammast sín nefnilega svo hrikalega. Þetta hefur aldrei gerst fyrir hana og mun ekki gerast aftur, því hún er góður bílstjóri. Söguna fáið þig að heyra seinna, en þá er það sem við tvær spáðum í alla leiðina heim, karlmenn hættið að lesa hér ef þið þolið ekki smá femínisma (erfitt orð!).
Við tókum alfarið eftir því hvað konur voru oft undir stíri, með karlmann í bílnum, örugglega aksturshæfann ( engann undir lögaldri þess að geta ekki keyrt meina ég nú ). Þá vil ég meina það, að í dag eru kvenmenn ( á Íslandi a.m.k.) alfarið mikið betri ökumenn heldur en karlar. Þeir hugsa um að spara bensínið eða díselinn, og keyra eins og hænur. Konur halda ferðinni áfram og eru ekkert að væla.
Við komum heim um átta leitið sökum þess að hundurinn var með í för, og myndavélin, og það sem ég vil ekki nefna!
Síðan að við komum var bara beðið eftir honum föður mínum sem kom á nýju Sindrarútunni, með trommusettið í för. Það var rifið út úr rútunni, skellt inn í bílskúr og fyr en varið var ég farin að rífa þetta allt saman upp. Við pabbi vorum líka að enda við að setja þetta fína, fína, fína trommusett upp! Ótrúlega stolt, reyndar vitum við ekki alveg hvernig hi-hatið á að koma saman, vinsamlegast einhver hjálpsamur að skíra það út fyrir mér þakka ykkur kærlega fyrir, pent!
Eins og menn vita þá á ég enga mynd af því ennþá, hún kemur á morgun eða í dag réttara sagt, þá skal ég skella henni inn, með mér inná skælbrosandi, er nefnilega búin að ákveða að skella upp kastaranum og taka nokkrar myndir á vélina. Ætli maður fari ekki að kíkja á þessar myndir sem teknar voru í þessari ferð, fara yfir þær, og læt einhverja fylgja í stað trommusettsins.
Eitt kom mér og pabba þó á óvart, það var bara einn cymbali og eitt hi-hat, en svo var standur fyrir annan cymbala, á það að vera svoleiðis? Þetta er bara byrjanda sett eins og ég er búin að segja áður.
en læt fylgja spurningu til ykkar;
Hvort eru karlmenn eða kvenmenn betri undir stýri?
Þið vitið mitt svar,
knús
Athugasemdir
Já, þessi regla er reyndar ekki þannig hjá mér, mömmu fyrst keyrt, mér síðan svo fer kallinn í vinnuna....
. Hótun á staðnum!
Og takk kærlega fyrir innlitið, og að láta vita, þykir voða vænt um það!
Ég læt söguna flakka þegar fleiri segja mér sýnar hliðar
Gleðilega páska
Róslín A. Valdemarsdóttir, 23.3.2008 kl. 01:58
Já Rólín mín þú ert dugnaðarforkur en hvað segir pabbi þinn við þessu með frjálslynda hann sem er svo gallharður frammari:) Þú ert að fara þínar eigin leiðir og ekki að láta mata þig á hverju sem er eins og unglingarnir í dag. Já ég dáist að þér, þú ert dugleg og sönn sjálfri þér og þínum. Gangi þér vel elskan mín og gleðilega páska..... P.S. Siggi er betri bílstjóri en ég svo að ég verð nú að viðurkenna það að hann keyrir sig í vinnuna og svo tek ég við en þegar ég sæki hann þá fær hann ekki að keyra:) Er þetta þá ekki bara jafnt hjá okkur.... Knús
Svava Bjarna (IP-tala skráð) 23.3.2008 kl. 08:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.