Endalausi kvartarinn!

Ég hef ekkert verið að auglýsa það neitt, en hef tekið þá afstöðu að segja það hér og nú. Í kvöld var ég í matarboði ásamt foreldrum mínum, systur pabba henni Sigrúnu og manni hennar honum Snorra, hjá ömmu Öddu og Einari afa. Þar sagði ég þeim þetta, og ýmsir svipir komu upp, en þegar ég fór að skíra mitt mál þá annað hvort hlógu þau að mér eða horfðu bara á mig.
Þannig er það nú að ég tók eftir því þegar ég fór að kynnast Höllu Rut bloggvinu minni pínu pons, að Frjálslyndi flokkurinn er það sem mér finnst ég geta stutt. Ég skráði mig þar af leiðandi í Landsamband ungra Frjálslyndra og fékk þar inngang. Einhversstaðar verður maður að byrja, og ég ætla að byrja þar. Þannig er mál með vexti að mig langar að taka eftir námið sem ég vil læra ætla ég í stjórnmálafræði, ég held að þess yrði þörf að bæta fleiri kvenmönnum með viti í þessa ágætu pólitík, ekki satt?
Ég var með myndavélina mína þarna og var að þrífa linsurnar, tóku þau síðan eftir XB merkinu á klútnum, og sögðu mér frá því ( ég vissi nú af því þarna áður ). Svo að ég kom með það ágæta svar, sýndi þeim klútinn, og sagði þeim að hann væri skítugur og þetta væri nú ágætis klútur til að þrífa skítinn af linsunumLoL. Ekki taka þetta inn á ykkur, þar sem ég var nú bara að segja þetta til að kæta liðið, oft gerir maður óvart grín á kostnað annarra.

Það gæti vel verið að fólk missi allt álit á mér núna, þar sem ég er búin að skrá mig í flokk. EN þó ættu þeir sem taka þetta inn á sig, að vita betur, ég er ekki verri manneskja fyrir því. Ég er ung manneskja sem reynir að koma sér á framfæri, og kynna sér hina ýmsu hliðar á landanum.

Þið segið mig kannski með mikið sjálfstraust og álit, en maður verður að stefna hátt til að enda ( þá meina ég byrja frekar ) hátt.

Það að biðja Evu Maríu að bjóða mér í sinn þátt, var bara til þess að sýna að við unglingarnir erum ekki allir eins, sem betur fer. Fjölhæft fólk er líka oft vanmetið, talið of montið ef ég tek einhver dæmi. Ég viðurkenni það vel að ég er montin, og hef oft heyrt það.
En aftur að Evu Maríu, þá hef ég oft heyrt ,, hvað í andskotanum vilt þú þangað?" og ,, hvað ætlarðu eiginlega segja við hana, þorirðu þessu eitthvað?", nú spyr ég til baka, útaf hverju styður fólk mig ekki bara áfram í þessu heldur en að segja þetta, þó það hafi engan áhuga á þessu, má samt alveg vera jákvæð við mig. Reyndar er mér farið að vera slétt sama hver viðbrögð fólks er, ef þau eru góð tek ég vel í gírinn, ef þau eru neikvæð er ég ekkert mikið fyrir að svara því.
Þeir sem þekkja mig vel, vita hve athyglissjúk ég er, og hve skrítin ég er í leiðinni, það er bara þannig og því vil ég ekki breyta.

  Það að ég kommenta hjá öðrum sem vita ekkert hver ég er, er bara almenn kurteisi, því að ég var þarna inni og mér finnst allt í lagi að láta vita af því. Ef fólki finnst það ekki við hæfi, má það vel segja mér það, en þar sem ég vil vita hverjir kíkja á mína síðu efa ég það ekki að aðrir vilji vita hverjir kíki á sína. Fyndnast finnst mér þó þegar er hrósað mér fyrir að tala vel, þá vil ég byrja á allt öðru máli.

Frá því að ég man eftir því að ég var í tölvu, sem er nú fyrir all löngu, og ég fékk mitt fyrsta MSN, þá fannst mér ekkert eins pirrandi og þegar fólk var að stytta óþarfar orð. Ekki með þessum "heilbrigðu" styttingum, heldur einhverjum sem eru bara byggðar upp á því hvernig orðið er sagt, mér er skítt sama hvernig maður segir orðin, bara að þau séu skrifuð rétt. T.d. þetta indæla orð, eitthvað, krökkum og öðrum finnst styttra að skrifa eikkað, sem er nú ekkert mikið styttra, og pirrar mann frekar............Angry

Svo vil ég leiðrétta mig aftur, amma og afi komu frá Kanarí ekki TenerifeW00t...

Ég er farin að hátta mig, eða allavega klæða mig í náttföt!

KnúsHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halla Rut

Þú átt eftir að koma í þáttinn hjá Evu Maríu eða einhverjum öðrum sem er svipaður. Vittu til.

Halla Rut , 22.3.2008 kl. 00:52

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Það er bara hvenær

Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.3.2008 kl. 01:05

3 identicon

Og þegar þú kemur í þáttinn hjá Evu þá minnist þú náttúrlega á skemmtilegasta kennara ever!!!! mig........... Smá grín..... En það er gott að hafa skoðun og kynna sér málin ekkert að því bara frábært, farðu nú bara að koma heim aftur og hætta þessu flangsi í Reykjavík!!!! Bestu kveðjur og góða ferð heim aftur í heiðardalinn  Kveðja Ragga Rabbamamma

Ragga... (IP-tala skráð) 22.3.2008 kl. 09:22

4 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ragga mín ég mun án efa segja henni frá skemmtilegasta kennaranum. En ég er nú alveg til í að fara heim, mamma og pabbi eru að skoða rúm, og svo förum við heim

Já Hallgerður, nokkuð til í því hjá þér. Ég er nú ekki mikið ófeimin, er samt frekar feimin þegar uppi er staðist. En þetta er fínasti hópur sem þú setur mig í, hljómar betur en athyglissýki. Ég man það, ég man það!
Þessvegna er það sem ég er ekki að breyta til, ekki vil ég eyðileggja það fyrir þér!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.3.2008 kl. 12:13

5 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Fínt hjá þér að ganga í flokk. Það má alltaf dæma um ágæti flokksins en aðalatriðið er að kynna sér málin og taka afstöðu. Það hefur verið í tísku of lengi að unglingar hafi ekki áhuga á stjórnmálum, nema helst þeir sem ganga í Heimdall. Vona að þetta sé að breytast og að ungt fólk fylli alla flokka. Það virkilega þarf þær raddir. Og ég er viss um að Frjálslyndi flokkurinn er ekkert of fullur af ungmennum. Hristu upp í þeim.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 22.3.2008 kl. 19:48

6 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Hallgerður, feimið fyrir framan almenning en í sínum hóp geislar það..

Já ég er sammála þér Kristín, það er búið að vera í hrikalegri tísku að hafa ekki áhuga á stjórnmálum hjá mínum jafnöldrum - svo er það líka að geta ekki tekið afstöðu, rosalega vinsælt..
Ég mun hrista upp í þeim, tekst ágætlega, þar sem ég fékk nú inngöngu þó ég sé ekki búin að ná þeim lögaldri. Það er nú Höllu Rut að þakka get ég sagt! En ég kem mínu sko alveg áleiðis til þeirra, og það er hlustað á mig hef ég séð!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.3.2008 kl. 22:01

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Veistu.. ég er rosalega ópólitísk og hef alltaf verið.. sérstaklega varðandi flokkspólitík. Auðvitað hef ég skoðun á mönnum og málefnum en hef aldrei getað tengt mig við einn ákveðinn flokk. En einmitt vegna Höllu Rut ætla ég nú að ganga í að kynna mér Frjálslynda.

Fólk sem ekki hefur snert af athyglissýki verður aldrei neitt áorkað. Það þýðir ekkert að læðast meðfram veggjum ef maður ætlar að ná árangri.

Jóna Á. Gísladóttir, 23.3.2008 kl. 23:52

8 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Halla Rut er alveg mögnuð, eitt orð um hana..
Endilega kynntu þér Frjálslynda, það er margt vitið í þeim!

Ég hef nú verið ögn mikið athyglissjúk, mér er sama hvað það er kallað, oftast veit fólk af mér þar sem ég er...

Róslín A. Valdemarsdóttir, 23.3.2008 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband