
Deginum í dag eyddi ég ekki í búðir, sem betur fer. Vaknaði um 11 leitið og gerði mig til, fórum í heimsókn kl. 1 til Ingu og Tóta, þar var Atli Sveinn með synina, Egil Gauta og Ara Val, algjörar rúsínur! Fengum köku, brauð og álegg, síðan kom Þórdís upp og talaði við okkur. Alltaf gaman að kíkja þangað í heimsókn

.
Um 4 leitið drifum við okkur svo að sækja Mayu frænku mína, villtumst aðeins en rötuðum á endanum. Ég og mamma kíktum inn til að segja hæ við Laufeyju og Töru, og ég fékk að pissa

. Fórum þaðan niður í Skautahöll, þurftum aðeins að bíða því það var verið að gera eitthvað við svellið, þegar við komum sáum við eldri mann fara út í sjúkrabíl, örugglega fótbrotinn. Við Maya fórum síðan að skauta, bara gaman. Hún var aðeins á undan mér og ég ætlaði að vera sniðug og taka framúr, flaug fram fyrir mig og fékk þessa fínu tvo marbletti á hnén, frekar fyndið! Ég hef aldrei farið þarna inn áður, fyndið þar sem ég var búin að ímynda mér þetta allt öðruvísi.
Maya var bara eins og einhver PRO, skautaði þarna eins og hún hefði fæðst á svelli

. Sýndi mér einhver stökk, ég veit ekki hvað þau heita. Hún reyndi svo að kenna mér eitt þeirra, en það var eins og ég væri bara kálfur þarna á svellinu. Mamma og pabbi komu síðan og fylgdust með, gáfust upp og biðu út í bíl. Við vorum allan tíman, þangað til var sagt að maður ætti að fara af svellinu. Síðan keyrðum við henni heim og keyrðum hingað til ömmu og afa.
Mætti okkur þessi dýrindis lykt í stigaganginum og auðvitað var það af lambinu sem amma er að elda, hlakka bara til að borða það.
Kvöldið er óráðið, kannski ég sitji heima, eða eitthvað annað!
Knús
Athugasemdir
Vildi að við hefðum komist með en Tara var eitthvað í slappari kantinum og hætti við að vilja fara.
Við förum bara í almennilega ferð næst þegar þið komið og þá getum við verið belja og kálfur og sameinast í klaufaskap 
Laufey Ólafsdóttir, 24.3.2008 kl. 09:57
Ekki málið Laufey! Þá getur Maya líka hlegið enn meira
...
!
Það er samt langt þangað til ég kem næst svo að það er bara að æfa sig
Róslín A. Valdemarsdóttir, 24.3.2008 kl. 13:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.