19.3.2008 | 01:06
Langur dagur!
Ég vaknaði í morgun á Hornafirðinum fagra, ókum af stað, ég og foreldrar mínir, áleiðis til Reykjavíkur þegar klukkan var að ganga 9. Þegar til Reykjavíkur var komið fórum við með Lubba út fyrir Mosfellsbæ á Hundahótel. Leituðum að hljóðfærabúðinni Gítarinn, fundum hana og kíktum inn, fljót vorum við að taka eitt stykki trommusett, hlakka rosalega til að setja það upp þegar ég kem heim!
Fékk kjuða með, á meðan mamma og pabbi fóru í búðir sat ég með tónlistina í eyrunum að leika mér með kjuðana, því að ekki vildi ég láta mömmu skammast sín fyrir mig, klæðaburðurinn á mér var ekki sem fínastur né hárið hreint ( ég með mitt skammtímarminni....).
Keyrðum út um alla Reykjavík og Kópavog í leit að hinu og þessu, enduðum í Rúmfatarlagernum í Smáranum og mamma og pabbi borðuðu þar, ég sat á móti lyftunni, allt í lagi með það. Ég smakkaði á hjá þeim og fannst þetta ekkert sérlega gott, svo allt í einu heyri ég rosalega kunnuga rödd og þá
datt það svona upp í huga mér, Eva María var þarna beint fyrir framan mig, og ég nýbúin að vera að blogga um það afhverju hún myndi ekki bjóða mér í þáttinn. Hún stóð á móti mér, og ég reyndi að láta sem minnst á mér bera, sem betur fer sá hún mig ekki og fór með börnin sín upp á aðra hæð!
Eftir að við vorum búin í Rúmfatarlagernum var Stjáni Stuð, ekki skrítið afhverju hann gengur undir því nafni, hoppandi glaður, syngjandi fyrir alla að hann væri að fara í Páskafrí, ótrúlega ánægður
Ég fékk síðan pítsu frá Hróa Hetti, og er búin að sitja hérna við tölvuna frá því um kl. átta að reyna að komast á netið!
Á morgun förum við í búðir að kaupa allskonar sniðugt, þar á meðal föt, veit ekki með allan daginn samt! Afi og amma koma annað kvöld heim frá Kanarí, þau eru alltaf á ferðalögum! Fer svo í einhverja heimsóknina annað kvöld, hlakka til þess
Knús
Fékk kjuða með, á meðan mamma og pabbi fóru í búðir sat ég með tónlistina í eyrunum að leika mér með kjuðana, því að ekki vildi ég láta mömmu skammast sín fyrir mig, klæðaburðurinn á mér var ekki sem fínastur né hárið hreint ( ég með mitt skammtímarminni....).
Keyrðum út um alla Reykjavík og Kópavog í leit að hinu og þessu, enduðum í Rúmfatarlagernum í Smáranum og mamma og pabbi borðuðu þar, ég sat á móti lyftunni, allt í lagi með það. Ég smakkaði á hjá þeim og fannst þetta ekkert sérlega gott, svo allt í einu heyri ég rosalega kunnuga rödd og þá

Eftir að við vorum búin í Rúmfatarlagernum var Stjáni Stuð, ekki skrítið afhverju hann gengur undir því nafni, hoppandi glaður, syngjandi fyrir alla að hann væri að fara í Páskafrí, ótrúlega ánægður

Ég fékk síðan pítsu frá Hróa Hetti, og er búin að sitja hérna við tölvuna frá því um kl. átta að reyna að komast á netið!
Á morgun förum við í búðir að kaupa allskonar sniðugt, þar á meðal föt, veit ekki með allan daginn samt! Afi og amma koma annað kvöld heim frá Kanarí, þau eru alltaf á ferðalögum! Fer svo í einhverja heimsóknina annað kvöld, hlakka til þess

Knús

Athugasemdir
Hæ hæ sæta...
Vona að þú eigir góða daga í Reykjavík, þín er sárt saknað!!!!!! Kær kveðja Ragga
Ragga Rabbamamma!!!!! (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 10:04
váá maður þarf alltaf að nota stærðfræðina þegar maður er að kommenta!!!
HÆJ RÓSLÍN! :) ÉG SAKNA þÍN! :) Því þú ert ein af bestu vinkona míííín :D
Komdu til DANNEMANNS og leiktu við mig! :) þá getum við farið á strendsur :)
Þú áttir að fara til Evu Maríu og spyrja um áritun! þú hefðir POTTþÉTT gert það
þegar við vorum til í gamla daga :) haha
Þórdís imsland (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 10:38
Sé að það er nóg að gera hjá þér í stórborginni til lukku með trommusettið
Gleðilega páska sæta og hafðu það gott

Brynja skordal, 19.3.2008 kl. 15:44
Gleymdi já frekar sniðugt að þú skyldir rekast á Evu Maríu þarna enn og aftur páskaknús
Brynja skordal, 19.3.2008 kl. 15:46
Takk Ragga

Ég sakna þín líka!!!

Þórdís í gamla daga var í gamla daga..
Brynja takk fyrir, það er sko já nóg að gera! Ótrúlega fyndið að hafa rekist á hana, gleðilega páska
Róslín A. Valdemarsdóttir, 19.3.2008 kl. 19:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.