17.3.2008 | 23:32
Æfingar
Góða kvöldið.
Dagurinn minn hefur verið frekar langdreginn má segja, þar sem ég hef þurft að mæta á leikæfingu þrisvar í dag. Ágætar svosem, byrjuðum kl 10.00 og vorum þar til 13.00, önnur æfingin byrjaði kl. 15.00 og var til 17.00 og þar æfðum við dans og svona flottheit, bara gaman, og síðasta æfingin var áðan frá 20.00 - 23.00, þá vorum við bara að æfa sönginn.
Í fyrramálið þarf ég að vakna á óKristilegum tíma ( frá minni hlið séð), kl. um hálf átta, keyrum svo af stað til Reykjavíkur, þar verðum ég, mamma og pabbi fram á laugardag. Planið er að kíkja á einhverja ættingja, kannski fara í leikhús, kaupa föt og kaupa trommusett. Ég hlakka rosalega til, því að loksins fæ ég það sem mig hefur lengi langað í.
Við gistum heima hjá ömmu og afa og þar kemst ég á netið, svo fólk getur heyrt í mér.
Knús

Athugasemdir
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.3.2008 kl. 08:27
Hæ Róslín og takk fyrir þetta frábæra blogg. Góða skemmtun í Reykjavík og farðu nú varlega. Bestu kveðjur til mömmu og pabba frá okkur í DK
Svava Bjarna (IP-tala skráð) 18.3.2008 kl. 09:46
Hæ aftur... Ég gaf mér það bessaleyfi að setja síðuna þína í tengla hjá mér því að mér finnst endilega að mínir gestir eigi að kíkja á síðuna hjá þér.... Haltu svona áfram þú ert svo flott elskan mín kveðja frá DK
Svava Bjarna (IP-tala skráð) 18.3.2008 kl. 10:00
Vonandi gekk ferðin vel til Reykjavíkur
Huld S. Ringsted, 18.3.2008 kl. 17:51
Ég er komin, ferðin gekk betur en netið hér get ég sagt!
Svava þetta er allt í góðu, þakka þér frekar bara kærlega fyrir það :)
Róslín A. Valdemarsdóttir, 18.3.2008 kl. 20:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.