16.3.2008 | 15:52
Idol vitleysingur!
Idol er samt ennþá uppáhalds þátturinn minn, þar sem ég horfði voða lítið á sjónvarp, og geri enn.
Ég hef þroskast, sem betur fer, síðan þetta var og lært að ég ætla að verða þekkt á mínum eigin forsendum, ekki vegna þess að ég held upp á þennan eða hinn. Það er þó gott að eiga sér einhverjar fyrirmyndir og gaman að hugsa til þess að í gamla daga hafði ég gert hitt og þetta.
Í dag hef ég bara verið að baka dýrindis jógúrtbollur, nóg handa öllum! Mamma sagði að ég væri kokkur, sem betur fer, mér finnst rosalega gaman að baka, ég spyr nú bara hvernig verður maturinn þegar ég fer að elda

Ég bað Ellý Ármanns að spá fyrir mér, hún bað um fæðingardag og ég vona að ég megi birta þetta hérna, allavega sagði hún orðrétt:
,, Látum okkur sjá mín kæra. Þú ert ákaflega rómantísk manneskja sem vill lifa til fulls og ég ráðlegg þér að láta hjarta þitt alltaf ráða för því ef egóið þitt fær að stjórna kemstu ekki eins lagt og þú ætlar þér. Fróðlegt er að sjá að það er eins og þú sért meðvituð um að tíminn er námsgagn og að ljósið þitt er kristaltært og hreint og það geislar frá sér fegurð og kærleika. Það sem þú þarft að læra er að minnka væntingar þínar og leyfa sköpunarþörf þinni að njóta sín en hún er vægast sagt gífurleg og hana verður þú að rækta. Í dag ættir þú að leggja þig mun betur fram við að skynja því þú gleymir stundum að næra sálina þína. Svo máttu vera opnari gagnvart fólkinu sem elskar þig og sigrast á tregðu þinni við að viðurkenna mistök. Þú veist hvenær þú hefur á réttu að standa og þú sýnir ást þína og umhyggju í verki og þú veist líka mætavel að karma annarra er ekki á þínu valdi, þeir verða að taka ábyrgð á sjálfum sér! En þú ert mjög sterk kona, afskaplega þrjósk (góður kostur) og töfrandi. Í framtíðinni verður breytilegt hvernig þú munt beita hæfileikum þínum og það verður þér eflaust sífelllt umhugsunarefni. Svo birtist líka skær fallegur gylltur litur þegar stjarna þín er skoðuð en hann táknar að þú ert gefandi og kýst að fylgja köllun þinni.
Gangi þér vel að sigra heiminn"


Athugasemdir
Váá mér finnst þetta eiga ekkert smá vel við þig!!!
Gugga (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 16:35
Róslín mín þetta er ekkert smá flottur spádómur, ég mundi prenta hann út og
geyma hann vel. held að þetta eigi mjög vel við þig.
Hvar náðir þú til Ellýar til að biðja um spádóm?.
Róslín mín þú talar um að það sé skrítið að hafa ekkert heyrt í mér í dag, og þar sem þú ert búin að vera í burtu og veist ekki hvað er mikið að gera hjá mér þá segi ég þér það hér með.
Dóra og tvíburarnir komu á fimmtudaginn var, voru komnar í páskafrí.
Íris mín sem bjó í Garðabæ fluttist hingað á föstudaginn´með Báru Dís sem er 9 ára, svo það er búið að vera heilmikið að gera í því að hjálpa henni að mála og
standsetja það sem hún ætlar að gera til að byrja með.
Þar sem ég get ekki gert neitt slíkt þá er ágætt að nota þá gömlu í matargerð,
og til að passa litla ljósið mitt.
t.d. eru þau öll nýfarin frá mér núna. Á morgun ætla tvíburarnir mínir að laga til í húsinu. Síðan á fimmtudaginn kemur sonur minn með sína fjölskyldu og verða þau fram yfir páska, í dag var ég að klára að setja saman matseðil fyrir alla þessa daga svo þú sérð snúllan mín að ég hef ekki mikinn tíma til að blogga, en ég reyni samt að koma aðeins inn og láta vita af mér og fylgjast með ykkur.
Um Páskadagana kemst ég kannski aðeins í tölvuna á morgnana, samt ekki víst.
Ég hlakka svo til að hafa öll börnin mín og barnabörn hjá mér, þetta verður yndislegur tími.
Takk fyrir að sakna þess að heyra ekki í mér, en það verður bætt úr því eftir páska.
Knús kveðjur Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.3.2008 kl. 21:06
Það er víst, á nokkuð vel við mig þessi spá, sem kemur mér stórlega á óvart.
Milla, ég einfaldlega sagði það meira í gríni en alvöru við Ellý á síðunni hennar. Hún vildi það með glöðu geði, alveg mögnuð hvað hún er góðlát.
Það er gott að eiga góða að, og mér finnst æðislegt að heyra af öllum gestagangi og því hjá þér, ég er sjálf að fara að hitta marga af ættingjum mínum í vikunni, alveg æðislegt.

Þú ert æðisleg Milla mín
Róslín A. Valdemarsdóttir, 17.3.2008 kl. 23:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.