Málfrelsi unglinga

Því hef ég tekið eftir hér á moggablogginu, að ég er ekki velkomin frá sumum aðilum að segja mínar skoðanir á málum. Sumir telja mig of unga til að mega yfir höfuð sjá þessar og hinar hliðar á umheiminum sem er ekki sanngjarnt. Skrítið finnst mér þó, þegar fólk hefur ekkert annað að segja, þegar ég set mínar skoðanir fram, að benda mér á það hvað ég er ung.
Ég og jafnaldrar mínir, sem eru m.a. framtíð Íslands verðum að sjá hvar samfélagið stendur í raun og veru, ekki að fólk feli það vonda fyrir okkur eða lætur lítið á því bera. Við erum þau sem gætu sameiginlega hjálpað til að gera Ísland að betri þjóð, styrkja góð málefni og líta á alla sem fólk.

Ég hef tekið eftir því einnig að sumstaðar eru unglingar álitnir ekkert geta, hafa ekki vit á neinu eða að þeir hafi ekki áhuga á að vita. Sá hópur er bara smámunahópur miðað við þá sem vilja vita, hafa áhuga og geta gert eitthvað og sagt í þeim alskyns málum sem á standa hérlendis.
T.d. berst bloggvinkona mín, Halla Rut, fyrir því að það verði hjálpað fötluðum með sitt, styð ég hana í því.

Þó svo að fólk sem sér mig út í búð, í mínum hversdagslegu lufsum, heldur mig skrítna, jafnvel frekar klikkaða. Þá hefur það lítið til gruns að bera, því þau vita varla hver ég er að innan, og það er allt sem höfuð skiptir máli. Vonandi að þið takið mark á mínum skrifum, þar sem ég vil að fólk taki eftir því að unglingar hafa skoðanir líka.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Indriðason

Nei, haltu bara þínu striki!  Segðu þeim sem eru eitthvað að dissa þig... að hugsa mál sitt betur.  Raunar... segðu þeim að reyna að ræsa heilann, og nota hann til þess sem hann var smíðaður upphaflega... að HUGSA.  Og HUGSA, áður en þetta fólk opnar munninn og tjáir sig.  (Raunar mættu sumir alveg sleppa því að tjá sig, en það er annar handleggur.)

(Innlitskvitt líka.)

Einar Indriðason, 15.3.2008 kl. 23:50

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Hahaha, það er mikið til í því sem þú segir

Róslín A. Valdemarsdóttir, 15.3.2008 kl. 23:52

3 identicon

Já, það er mikið óréttlæti að unglingar eru allir dæmdir eftir hver öðrum. Ef einn er vandræðaunglingur þá hljóta hinir að vera það líka. Þoli ekki svona þröngsýni, hef ekki séð það á okkar vinahópi t.d. annað en að við séum öll með frekar góðar einkannir, í góðum málum og ekki að gera neitt af okkur. Finnst líka asnalegt þetta með að við megum ekki tjá okkur um mál, eða að við séum of ung til þess, þar sem við höfum oft eitthvað viturlegra að segja en gamla fólkið.
Sé þig eftir páska, knús á þig

Eva (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 23:54

4 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Þú ert æði Eva mín, stendur alltaf með mér takk
Knús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 15.3.2008 kl. 23:55

5 identicon

Auðvitað stend ég með þér, þú hefur alltaf rétt fyrir þér og ert ein besta vinkona mín  Enda stendur þú alltaf líka með mér, þykir vænt um að eiga svoleiðis vini

Eva (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 23:58

6 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

sömuleiðis

Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.3.2008 kl. 00:04

7 Smámynd: Óskar Arnórsson

Konur eru vitrari en menn á hvaða aldri sem þær eru...farðu bara að undirbúa þig að byrja á að stjórna þessu landi!

Þú ert akkúrat týpan í það og það á eftir að vanta fólk eins og þig til að tryggja hagsmuni þessa lands.

Og að hlusta ekki á þetta bull um aldur! Það er þroskaaldurinn sem skiptir mestu máli...

Óskar Arnórsson, 16.3.2008 kl. 02:25

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Róslín mín þú ert bara frábær, og auðvitað hefur þú skoðanir eins og við hin sem
eldri eru. haltu þínu striki, bloggaðu yfir okkur öllu því sem þú villt láta frá þér fara,
hingað til hef ég allavega haft fróðleik og gleði af því að lesa það sem frá þér kemur. Bara við að sjá myndina af þér gleður mig, allt sem þú segir er einn stór plús.

Mér hefur nú sýnst að þú látir ekki neikvæð komment hafa árif á þig,
en ég veit af eigin reynslu að það getur sært, þá skalt þú líka segja okkur frá því.
                              Kveðja besta snúllan mínMilla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.3.2008 kl. 09:15

9 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Óskar, það er svo gaman að sjá að einhver maður hugsi svona Og takk kærlega fyrir!

Milla, takk fyrir, það er æðislegt að það gleðji þig, og bara hlýlegt að heyra svona. Ég læt aldrei neikvæð komment hafa áhrif á mig, ég leiðrétti manneskjuna bara.
Knús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.3.2008 kl. 11:04

10 identicon

Hæ Róslín ! (FALLEGT NAFN) Ég bara verð að láta það koma , ÞÚ ERT FRÁBÆR  Endilega halltu áfram að blogga , sama hvað öðrum finnst

Sigríður Wium (IP-tala skráð) 16.3.2008 kl. 16:05

11 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk kærlega fyrir þetta Sigríður Wium
Bara æðislegt að fá svona komment

Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.3.2008 kl. 16:13

12 Smámynd: Halla Rut

Takk fyrir hólið kæra vinkona.

Svona hefur þetta nú alltaf verið Róslín, ekkert eða lítið mark tekið á unga fólkinu. Einnig fær fólk á misjöfnum aldrei ekki mörg tækifæri til að tala saman en það er einmitt það sem gerir þetta blogg svo skemmtilegt og áhugavert að hér leiðist saman fólk á öllum aldri, frá öllum þjóðfélagshópum og alstaðar af á landinu og meira að segja heiminum.

Þú ert frábær ung kona með sterkar skoðanir. Haltu áfram á þinni braut og þú munt heiminn sigra.   

Halla Rut , 16.3.2008 kl. 23:15

13 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Það er löngu kominn tími til að eitthvað sé gert í þessum málum. Bloggið er snilldar uppfinning, þar sem að fólk fær að tjá sig eingöngu sín vegna.

Þakka þér fyrir, og ég mun með sanni halda áfram á minni braut.

Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.3.2008 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband