Ég kann ekki að vera veik...

Gullkorn úr ferðinni sem ég gleymdi algjörlega að segja frá:

Við Rafn vorum oft í billjard, ég var stundum svo heppin að hitta enga kúlu, og svindlaði smá. Hljóp oftast eftir kúlunni og stillti henni upp á sama stað aftur, svoleiðis gekk það nú nokkrum sinnum fyrir sig í röð.
Í eitt skipti hitti ég nokkrar kúlur, og svo skemmtilega vildi til að ég fór með kjuðann í andlitið á Rafni, brást frekar snöggt við því og var fljótað afsaka mig og gá hvort það væri ekki í lagi með hann. Það var í lagi, en sem meira var að ég hitti minni kúlu ofan í í leiðinniW00t .

Annars þá kann ég ekki að vera veik, ég er með einhver einkenni þess að vera veik. Anna Magga spáði veikindum annað hvort hjá mér eða einhverjum nákomnum þegar ég kæmi frá Laugum. Það fór þannig að ég vaknaði ælandi á gólfið Sick . Svona var mamma mín þá heppin, fór fram til hennar og þreyf mér í framan og á höndunum, þegar mamma var búin að þrífa þetta upp, setti hún ælufötuna góðu við rúmið, vatn í glas og ég upp í rúm. Sofnaði og svaf til kl. 15.00.
Þau einkenni sem eru að angra mig núna er svimi og er með æluna upp í koki, svona ef þið vilduð vita það. Eins og ég segi, ég kann ekki að vera veik. Mér finnst allt of leiðinlegt að liggja upp í rúmi og láta vorkenna mér, ég bíð bara eftir því að þetta lagast allt saman og þá verð ég orðin góð.

Ég er í svona einkennilegu skrifstuði, svo að ég ætla aðeins að nýta mér það meira í dag, gaman líka að segja frá því að á þriðjudaginn er ég á leiðinni til Reykjavíkinnar góðu, svona til að láta ykkur vitaGrin . Þið heyrið meira í mér á eftir!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ælupest er ömurlegasta veikin, því maður veit aldrei hvenar hún er búin. Þakkaðu bara fyrir að fá ekki ælupest, hálsbólgu, kvef og hita eins og var hjá mér um daginn, ekki beint skemmtilegur tími :')
láttu þér batna elsku Rósla mín  

Eva (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 23:41

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég er bötnuð þökk sé mér sjálfri hahahha

Róslín A. Valdemarsdóttir, 15.3.2008 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband