Laugar í Sælingsdal

Ég ætla ekki að hafa þetta leiðinlegt blogg, svo ég tek bara það eftirminnilegasta úr þessari ferð.

Við s.s. lögðum af stað á sunnudaginn, eftir 11 klst. í rútu fékk ég hrikalegan hermannabedda, en Árdís og Eva fengu mjúk og góð rúm. Daginn eftir var farið í eitt og annað, þar á meðal íþróttatíma og skipt okkur upp í tvo hópa, Þursana og Jörgen, sem kepptu svo í hinu ýmsu hlutverkum.
Við gerðum brjóstsykur sem voru rosalega góðir. Ég var mjög mikið með honum Rafni mínum sem var bara æðislegt og gaman. Vorum oft í billjard og gaman að segja frá því að ég vann hann með heppni 2 af sirka bát 15 skiptum. Ég fór í sund, eitthvað sem ég hef ekki gert í einhverja mánuði, reyndar var ég þá bara með Rafni, og einhverjir nokkrir aðrir ofan í lauginni líka. Fengum heimsókn frá krökkunum í Búðardalsskóla.
Fórum í draugaóvissuferð, ég og Rafn hættum við eftir fyrstu söguna, og þegar þau komu aftur upp fengum við heitt kakó og mjólkurkex. Eva fór inn á herbergi og ég á eftir, henni brá svo hrikalega að hún öskraði og mér brá þá líka og fékk nær hland fyrir hjartað. Ég sagði Jörgen, manninum sem var með okkur í íþróttum og fór með í óvissuferðina, að ég hafi fengið minn skammt útaf því. Kom hann stuttu síðar út úr eldhúsinu með grímu fyrir andlitinu, gekk í átt að mér eins og Kvasí Módó, ég leit upp í sekúndubroti, hélt áfram að borða, leit snöggt aftur upp og hvað upp þetta skelfingaróp. Grenjaði síðan útaf losta, mér brá svo allhrikalega, en síðan urðu tárin bara að hláturtárumTounge , leið nær yfir hana Evu, og á meðan horfði Rafn á mig eins og ég væri eitthvað hrikalega furðuleg.
Við lærðum að spá í bolla og á spil og margt, Anna Magga ( kona sem vinnur þarna með krökkum á Laugum)  kom með spurningu um það hvort að Þursarnir myndu vinna Landnámsleikana í Völvuspá, og hafði Völvuspáin rangt fyrir sér þar sem að okkar lið átti að tapa. Við hertum okkur svo allverulega á og styrktum liðsheildina, klæddumst öll eins og eins máluð. Við Þursarnir tókum þetta með stæl og unnum Landnámsleikana.
Skemmtilega má segja frá því að ég lenti í 4-6. sæti í rökræðikeppni milli liðanna af 32 krökkum, og er þar með nokkuð stoltGrin .

Ég mun setja inn myndir á eftir, en vil þakka fyrir, krakkar fyrir góða ferð, Bryndísi og Guðmundi Inga fyrir þolinmæði, og síðast en ekki síst Jörgen, Önnu Möggu, Freyju, Aldísi og Irenu kærlega fyrir mig. Ég var mjög kurteis eftir hverja máltíð að líta við í eldhúsinu einmitt og þakka fyrir matinn, og ég borðaði allt til þess að ég yrði ekki svöng, sem virkaði þó voða lítið þar sem ég borðaði frekar lítið.

KnúsHeart

P.s. Ég var að skoða gömul 24 stunda blöð hér á netinu, 4. mars kom í bloggurum mín færsla um að ég vildi fá boð til Evu Maríu. En ég vona að þetta fari allt vel, þar sem að í bollaspánni kom fram að eftir mánuð yrði fullt af fólki í kringum mig.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Það er alveg örugglega nóg að gera hjá henni Evu Maríu, svo ég bíð þolinmóð.
Gott að það sé fínt að fá mig aftur hihi

Róslín A. Valdemarsdóttir, 14.3.2008 kl. 22:04

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Gaman að sjá þig aftur Róslín, þetta hefur greinilega verið skemmtileg ferð hjá þér

Huld S. Ringsted, 14.3.2008 kl. 22:55

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Sömuleiðis Huld!

Já hún var meiriháttar skemmtileg bara.

Róslín A. Valdemarsdóttir, 14.3.2008 kl. 23:06

4 Smámynd: Anna Guðný

Velkomin heim skvísa.

Anna Guðný , 14.3.2008 kl. 23:54

5 identicon

Æj hefði verið æði að vera með . Eeeeenn maður getur ekki allt .
en en en "hland fyrir hjartað" það er að segja " Piss í hjartað " ??

annars er ég að batna smá í íslenskunni . hehe :b
gott að heyra í þér elskan mín og sakna þín rosalega .
hlakka til að sjá þig sem fyrst .

Þórdís Imsland (IP-tala skráð) 14.3.2008 kl. 23:55

6 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk Anna Guðný!

En Þórdís mín, þú ert kannski að skána, en hrikalegt stundum að lesa það sem þú skrifar... nei nei ég er að stríða.

Að fá hland fyrir hjartað er t.d. þegar verið að bregða manni og manni verður brugðið

Róslín A. Valdemarsdóttir, 14.3.2008 kl. 23:59

7 Smámynd: Þröstur Unnar

Fjör hjá þér.

Ég er kannski að fara að Laugum um páskana í jeppatúr.

Þröstur Unnar, 15.3.2008 kl. 08:43

8 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Það er alveg örugglega flott þarna fyrir jeppa, allavega það sem ég sá.

Róslín A. Valdemarsdóttir, 15.3.2008 kl. 08:56

9 Smámynd: Brynja skordal

velkomin heim sæta skvís þetta hefur verið gaman hjá ykkur hafðu góða helgi

Brynja skordal, 15.3.2008 kl. 09:43

10 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk Brynja, sömuleiðis

Róslín A. Valdemarsdóttir, 15.3.2008 kl. 15:00

11 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Gott að það var gaman hjá ykkur Velkomin heim!

Laufey Ólafsdóttir, 15.3.2008 kl. 15:59

12 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Takk Laufey mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 15.3.2008 kl. 16:02

13 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ég er að vanda mig eins og ég get Róslín!..með stafsetninguna þú veist!.. En það er gaman að að skellihlátri og ferðasagan þín er algjör snilld!

Óskar Arnórsson, 15.3.2008 kl. 16:20

14 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Eins gott fyrir þig að vanda stafsetninguna, djók..
Þakka þér fyrir það, reyndi að hafa hana skemmtilega, oftast eru svona ferðasögur svo ótrúlega leiðinlegar.....

Róslín A. Valdemarsdóttir, 15.3.2008 kl. 16:43

15 identicon

Haha, þetta var æðisleg ferð. Þétti hópandann í árgangnum, og maður eignaðist nýja vini. Fannst langskemmtilegast á morgnanna þegar þið Árdís voruð svona æðislega "grumpy" eða morgunfúlar, aumingja Bryndís fór ekki varhluta af því  En Jörgen kallinn má vara sig, við hefnum okkar seinna
Hlakka til að sjá þig eftir páska, skulum líka sjá hvort Anna Magga spáði rétt fyrir mér um páskafríið
Knúúúús

Eva (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 23:37

16 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

hahaha, ekki má gleyma ,, VILTU HÆTTA ÞESSU" þ.e.a.s. þegar Árdís var að tannbursta sig hahaha...

Knús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 15.3.2008 kl. 23:46

17 identicon

Hahaha, það var alveg yndislegt þegar þú öskraðir þetta á hana, enda sprakk ég líka úr hlátri þótt ég væri varla búin að opna augun

Eva (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 23:56

18 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég sagði þetta nú hálfsofandi-vakandi, hún er líka óendanlega lengi að tannbursta sig......

Róslín A. Valdemarsdóttir, 15.3.2008 kl. 23:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband