8.3.2008 | 17:45
Eldri minningar!
Ég var að dandalast í heimilistölvunni og fann gömul verkefni sem ég átti að skila í skólann, finnst sumt af þeim rosalega fyndið, þar sem ég hef nú aðeins skánað í skrifum
Ætla að deila þessu með ykkur, því eitthvað verðið þið að hafa að lesa í vikunni frá mér. Vil taka það fram að ég ritskoða þetta ekki núna, þar sem ég greinilega gerði það ekki þegar ég var að þessu, bara gaman að lesa þetta eins og ég skrifaði..
Ef ég væri forseti
Þá mundi ég búa á Bessastöðum. Síðan þyrfti ég að skrifa unir full af skjölum
frá Alþingi. Þá mundi ég líka þurfa að fara í fullt af veislum bæði hér heima
og í útlöndum. Svo þyrfti ég sjálfsagt að taka á móti erlendum þjóðhöfðingjum
halda þeim góðar veislur. Ég mundi hafa góðan einkabílstjóra og eiga fullt af
flottum bílum.
Fullkomin dagur (ekki ritskoðað eins og ég segi)
Fullkomin dagur væri svona.Ég mundi byrja á því vakna kl. 7:30.
Þá mundi ég fá mér kokopops og fara aftur að sofa. Ég mundi fá mér kjúkling.
Síðan mundi ég fara í fótbolta í íþróttahúsinu. Þá mundi ég hafa pizzu í
kvöldmatinn og kók með. Um kvöldið mundi ég horfa á góða spólu og fara síðan að
sofa um kl. 10 leitið.
Já, mér finnst rosalega gott að borða eins og sést hér að ofan, enda líka myndirnar af mér maður!
Eins og sumir vita skrifaði ég sögu sem ég kláraði aldrei, ég fann þessa sögu í tölvunni og þegar ég fer yfir hana aftur er hún ekki eins góð og mér þótti hún vera á sínum tíma, ég skrifaði þessa sögu í 6. eða 7. bekk.
Ég heiti Elísa Björg
Ég er að verða 13 ára. Ég er með nokkrar freknur, brún augu og skollitað hár. Ég er sirka 170 á hæð, og er þar með stærri en allar vinkonur mínar. Fjölskyldan mín er mjög stór. Mamma mín heitir Aðalheiður og vinnur á skrifstofu og pabbi minn heitir Gunnar og er lagasmiður. Ég á þrjá bræður sem eru allir yngri en ég og heita Haraldur Jón, Björn Úlfur og Sigurður Már, og ég á eina hálf systur sem heitir Sólrún, hún er eldri en við hin. Ég bý á Akureyri og á fullt af vinkonum. En þær sem ég er alltaf með heita Silvía Rán, Jóhanna, Ragnheiður og Bergdís kölluð Bíbí. Ég á líka einn kött, hann Sölmund. Ég fékk hann þegar ég var að verða 9 ára frá ömmu og afa í afmælisgjöf. Hann er mjög mannblendinn. Ég æfi fótbolta með KA og er eini markmaðurinn, og ég er í 4. flokk, og spila líka með 3. flokk, talin mjög góður leikmaður. Ég er reyndar alltaf í sókn þegar ég er með 3. flokk. Allar vonkonur mínar spila fótbolta nema Ragnheiður og Silvía Rán. Þær eru meira hrifnar af strákunum spila, og horfa á þá í öllum frímínútunum. Ég fer bara með Bergdísi og Jóhönnu í Asna og Klukku. Ég fer þrisvar út að skokka með Jóhönnu og Bergdísi, því að þjálfarinn segir að efað við ætlum að geta orðið góðar fótboltakonur þurfum við alltaf að vera með gott þol, borða vel og reglulega og vera með góða tækni. Ég er mjög söngelsk og er í Barnakór Akureyrar, og syng stundum einsöng. Ég er með miklu öðruvísi tónlistarsmekk heldur en hinar stelpurnar, ég hlusta mikið á Queen, Abba og svo elska ég tónlistina hennar Emilíönu Torrini og Bjarkar, ég hlusta mikið á Pál Óskar, Bubba Morthens og Siggu Beinteins. En ég þoli ekki þungarokk, og alls ekki Metallicu, Korn og SlipKnot, þótt ég hafi ekkert á móti þeim. Mér finnst mjög skemmtilegt að leika í leikritum, og vil altaf taka þátt í öllum leikritum sem eru gerð. Ég stefni í MA og svo í Leiklistaskóla Íslands, og læra að verða leikkona, svo ætla ég líka að vera söngkona.
Þarna greinilega gerði ég engan milliveg á lífi mínu og sögupersónu minni, margt sem sést í mér. Þarna má m.a. sjá nafnið Sólrún, og draumóra mína, rosalega er ég glær manneskja..
Síðast en alls ekki síst er það uppáhalds ritgerðin mín sem ég hef skrifað, vorönn 2006 í Hafnarskóla. Áttum að skrifa okkar framtíðarstarf, og fá upplýsingar hvernig við gætum orðið það, og svona hljómar mín ritgerð.
Leiklist
Inngangur
Í þessari ritgerð fjalla ég um hvernig maður getur orðið leikkona / leikari, því ég hef ákveðið að taka það starf að mér þegar ég verð fullorðin, því mig hefur alltaf langað að verða fræg leikkona síðan ég var bara 4 ára, einnig langaði mig alltaf að verða fræg leikkona vegna þess að maður fær svo mikla athygli. Svo hefur það alltaf verið draumur um að gefa litlum börnum eiginhandaráritanir.
Meginmál
Þegar ég fer í Heppuskóla ætla ég að fara í Leikfélag lopa, og gá hvernig mér líkar leiklistin, og hvort leiklist henti mér. Eftir Heppuskóla hafði ég hugsað mér að ganga í Menntarskólann á Akureyri, og fara þar á félagsfræðibraut, ég þarf helst að klára 6 einingar í íslensku og 12 einingar í erlendum tungumálum eða samtals 123 einingar, og á meðan ég er í Menntarskólanum á Akureyri ætla ég að spila fótbolta með KA eða Þór og spila þar í marki. Ég stefni svo á að fá inngöngu í Listaháskólann á leiklistabraut eftir stúdent, eða að fara kannski til Bretlands í leiklistarnám, því þar eru margir góðir háskólar með leiklistarbraut, en leiklistarnám á Íslandi tekur fjögur ár. Ég hafði samband við Guðlaugu Elísabetu leikkonu og hún sagði mér að í leiklistarnámi er lögð mikil áhersla á íslenskt mál, mælt og ritað og þess vegna væri gott að hafa góðan grunn í íslensku. Auk þess væri nauðsynlegt að hafa nokkuð gott vald á ensku, dönsku og einhverju þriðja máli vegna þess að lesefni í skólanum er margt ekki fáanlegt á íslensku, en ég ætla að læra frönsku sem þriðja mál. En hún segir að það sé líka gott að kynna sér ný verk erlendra höfunda.
Þegar ég verð búin í Listaháskólanum, ætla ég kannski að fara að leika í Loftkastalanum, Þjóðleikhúsinu,Borgarleikhúsinu eða Austurbæ. Í leiklist held ég mikið uppá Ilmi Kristjánsdóttur, Guðlaugu Elísabetu Ólafsdóttur, Helgu Braga og fremst í þeim hóp er Edda Heiðrún Backman, sem er búin að leika í mörgum fallegum, fyndnum og sorglegum leikritum. Allar þessar konur eru fyrirmyndir mínar í leiklist, því þær eru allar fyndnar, skemmtilegar, skrítnar og magnaðar. Svo kannski á ég eftir að leika með einhverri þeirra, það væri ábyggilega mjög lærdómsríkt. Mig hlakkar mikið til framtíðarinnar, efað ég næ að verða leikkona, því það er örugglega skemmtilegasta starf í heimi.
Lokaorð
Ég á mjög góða framtíð fyrir mér, því ég gæti alveg farið í tölvufræði og verið markmaður í Val og íslenska landsliðinu í fótbolta efað leiklistarnámið klikkar, en leiklistarnámið klikkar ekki. Annars var mjög gaman að vinna þetta verkefni, því það er rosalega gaman að vinna í tölvum, og líka rosalega gaman að fá að skoða hvernig leiklistarnámið er. Takk fyrir mig.
Auðvitað hafa plön mín breyst síðan ég skrifaði þetta, en alltaf er gaman að lesa gömul verkefni eftir mann sjálfan.
Knús
P.s. svo þið saknið mín líka ekki allt of mikið, þá skil ég eftir slóðina á youtube síðuna mína, þar eru fleiri "verk" eftir mig.
www.youtube.com/user/roslinvaldemars
Ég mun sakna ykkar líka, en þetta er síðasta færslan mín áður en ég fer, eigið yndislega viku
Athugasemdir
Framtíðarplön mín hafa breyst í námi, en ekki það að verða leikkona. Núna ætla ég mér í Borgarholtsskóla á Upplýsinga- og fjölmiðlabraut, þar er mikið um verklegt nám sem hentar mér mun betur. Þaðan ætla ég svo til að útskrifast í viðurkennt nám í Kvikmyndaskóla Íslands, eftir eitt ár þar verð ég útskrifuð úr Borgarholtsskóla og annað ár útskrifuð þaðan, svo ætla ég út á vinnumarkað framtíðarinnar, svo gerist ég forseti upp á gamnið eftir fimmtugt, þá er lífið rétt að byrja
..
Hafðu það sömuleiðis gott Hallgerður mín
Róslín A. Valdemarsdóttir, 8.3.2008 kl. 18:27
Jæja ég vildi bara óska þér góðrar ferðar og ég vona að þetta verði skemmtileg
vika hjá ykkur öllum. Farðu varlega og vertu stillt!!!!! knús, Ragga
Ragga (IP-tala skráð) 8.3.2008 kl. 19:48
Takk fyrir Ragga mín, og ég fer varlega en er ekki viss um hvort ég verði stillt...

Knús
Róslín A. Valdemarsdóttir, 8.3.2008 kl. 19:55
Baráttukveðjur fyrir framtíðinna! Þér eruð sko alveg á réttri línu..
Óskar Arnórsson, 9.3.2008 kl. 00:27
Þakka þér kærlega fyrir það Óskar
Róslín A. Valdemarsdóttir, 9.3.2008 kl. 00:31
Góða ferð krútta og skemmtu þér vel og hafðu góða viku í sælingdal hlakka til að heyra frá þér aftur knús

Brynja skordal, 9.3.2008 kl. 01:47
Takk fyrir Brynja, knús
Róslín A. Valdemarsdóttir, 9.3.2008 kl. 01:57
hahah váá ég veit ekki einu sinni hvað ég á að gera eftir 10 bekk .
veit bara að ég ætla að vera söngkona . ahahah xD
annars góða ferð rósla mín og skemtu þér vel :*
KNOUSEEERS<3
Þórdís Imsland (IP-tala skráð) 9.3.2008 kl. 08:11
Æ, dúllan mín þú ert nú örugglega farin af stað enda löng ferð fyrir höndum,
Milla.
en samt ætla ég einu sinni en að segja bless og hafðu það æðislegt
Það verður yndislegt að fá að fylgjast með þér upp allan stigann og svo kem ég
til að horfa á þig á fjölum leikhúsanna, en ef þú skildir verða eitthvað annað,
þá er það líka allt í lagi það má skipta um skoðun.
Knús á þig
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.3.2008 kl. 09:23
Knús
Róslín A. Valdemarsdóttir, 9.3.2008 kl. 09:47
Bless og hafðu það frábært.
Halla Rut , 11.3.2008 kl. 00:08
Þetta er mjög skemmtilegt
Sé að þetta er tíminn sem þú vildir verða Akureyringur 
Vakna kl. 7:30, fá sér cocoa pops og leggja sig, fá sér svo kjúklig...
Hljómar vel! Úff hvað ég ætla ekki að grafa upp skrif síðan ég var á þessum aldri
þau eru samt örugglegasamviskusamlega geymd hjá móður minni.
Gangi þér vel kæra frænka.
Laufey Ólafsdóttir, 12.3.2008 kl. 17:42
kjúkling...
lyklaborðið hefur verið að bögga mig
Laufey Ólafsdóttir, 12.3.2008 kl. 17:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.