7.3.2008 | 21:46
Laufey svei þér!
... það er ekki lítil ástæða afhverju bloggfærslan byrjar svona, ég er ótrúlega þreytt. Talaði endalaust við frænku mína Laufey langt fram eftir öllu í gærnótt má segja. Lá í hláturskrampa, en það var þess virði. Er núna að leka niður af þreytu, komin með smá bauga og nokkuð ferskleg að sjá, sígeispandi og fínleg heit.
En út í allt aðra sammála, Bandið hans Bubba er núna í sjónvarpinu og ég hef ekki einu sinni litið á það, frekar leiðinlegur þáttur fyrirgefið. Maður veit hverjir vinna, og birtingin og myndin er svo hrikalega léleg og leiðinleg. Ég giska á að Eyþór eða Arnar vinni, sem er satt.
Fyrirsjáanlegri þátt hef ég aldrei á ævi minni litið áður á.
Eitt sem ég hef verið að spá, það er Silfur Egils. Þegar mamma vill horfa á það, kíki ég stundum líka á það í sjónvarpinu, og það eina sem ég geri er að hlæja þegar þau fara að rífast, það væri bara myndarlegt ef hann myndi hleypa mér í þáttinn, og ég sæti bara hlæjandi af fólkinu sem væri þarna, og þyrfti að fara úr mynd til að þurka mér um augun, get vel hugsað mér út í það
..
Knús
Athugasemdir
Horfi sko alltaf á þáttinn hans Bubba enda mikil Bubba aðdáandi til margra ára
en það má svo sem finna eitthvað við alla þætti en já sammála er alveg viss um Eyþór var það strax þegar ég sá prufu þættina en Arnar kemur sterkur inn þarf fyrst að sjá hann syngja rólega ballöðu kemur í ljós....takk fyrir skemmtilegt spjall í kvöld sæta góða nótt
Brynja skordal, 7.3.2008 kl. 23:49
Bubbi er svo sem ágætur greyið sjálfur, en sumir í þættinum eiga bara engan veginn að vera þarna, strákurinn héðan, hann Elvar Bragi, er svo mikið betri söngvari en margir af þessum 10 sem komust áfram! Svoleiðis er bara sannleikurinn
..

Takk sömuleiðis
Róslín A. Valdemarsdóttir, 7.3.2008 kl. 23:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.