Draumórar og sögur úr fortíðinni

Sit hérna sem oft áður við tölvuna og er að skoða á eBay. Alltaf þegar ég er að skoða á eBay skoða ég það sama, bara þetta eina.

Þegar ég var 4-7 ára og bjó á Kirkjubrautinni, og mamma var inní eldhúsi, sat ég oft með nokkra potta á gólfinu og box, með trésleifar í sitthvorri hendi. Sló eins og ég gat á pottana og boxin. 11 - 12 ára var ég í leynilegri " hljómsveit " og var þar á trommum, sem voru úr plastboxum og boxum utan af makkítossi. 14 ára, eða fyrir fermingu fór ég að hafa enn meiri áhuga á því að spila á trommur, munaði svo litlu að ég hefði keypt svoleiðis fyrir ekki svo mörgum mánuðum. En maðurinn hætti við að selja það á síðustu stundu.

Enn og aftur í dag er ég föst fyrir framan tölvuskjáinn að leita að hinu einu sanna trommusetti sem ég bíð eftir að fá að slá á. Ótrúlegt hvað sama hljóðfærið er fast í huga manns lengi. Ég er reyndar lesblind og ótrúlega lesblind á nótur og þessháttar og átti mjög erfitt með að læra á blokkflautu í 1 - 3. bekkjar. Fannst líka trommusett mest spennandi af öllum hljóðfærum, og ég hef svo mikinn áhuga á tónlist að mig langar að geta tekið þátt.

Svo finnst mér alltaf jafn gaman að minnast á það að ég datt á vegasalti þegar ég var á leiksskóla. Beint á andlitið og var hrikalega bólgin, er með tvö ör fyrir neðan nefið sem koma alltaf betur og betur í ljós, svo höldum við mamma að ég sé með eitt ör eftir það að ég fékk líka gat í nefið þegar ég datt.

Mér fannst alltaf gaman af því að monta mig í vinkonu mína Þórdísi að Sigga Beinteins væri frænka mín en ekki hennar. Einn daginn var mér svo sagt að hún væri ekki frænka mín, en afi minn í pabba míns ætt sagði mér svo að hún væri það barasta víst, og hún er þaðGrin. Líka Rúnar Júl, sem ég söng með í afmælinu hans afa ,, er ég kem heim Búðardal bíður mín brúðarval". Mamma hennar Laufeyjar frænku minnar, Andrea Jóns. er líka frænka mín í móðurætt, mikið skildari mér heldur en Rúnar og Sigga.Lét alla vita af því að Andrea Jónsd. væri sko frænka mín í 6-7. bekk W00t.

 Ég elskaði Idol, það íslenska á sínum tíma. Þekkti alla, vissi í hvaða sæti og þætti þessi hafi verið og framvegis. Það gekk svo langt í 3. seríunni í Idol að margir úr 3. seríunni vissu hver ég væri, og sumir muna enn, og þekkja mig ennGrin . T.d. Nana og Gugga Lísa, þær eru alllllllllgjör æðiGrin .


Jæja, ætla ekkert að segja frá deginum þar sem ykkur langar alls ekki að vita í hvað hann fór. Nema bara að skoða trommusett, er einmitt búin að finna það sem ég ætla að fá.Bandit
Reyndar var ég með mömmu í eldhúsinu, komum upp smá ljósmyndastúdíói og hér er ein mynd þaðan, frekar skökk samt;



KnÚsHeart
Eigið gott laugardags kvöld og munið að kjósa rétt! Þá eruð þið í góðum málumJoyful .

This is my life - Eurobandið ( Regína Ósk & Friðrik Ómar)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Fáðu þér bara trommusett, ef þér líkar það ekki þá selur þú það bara.
Já eiga þau að vinna? nú af hverju ekki, ef ég verð vakandi þá kýs ég þau.

Knúsý kveðjur og hafið það gott í kvöld.
                   Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 23.2.2008 kl. 19:52

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ef ég ætti nú bara peninginn til þess, er að reyna að plata foreldra mína í að kaupa svoleiðis.. kemst upp með það á endanum, er viss um það.
Þau bara verða vinna, einu sinni finnst mér það sanngjarnt, ekki eitthvað bull eins og þarna hey hó bandið - ekki hægt að kalla þetta söng..

Knús og hafðu það sömuleiðis gott í kvöld

Róslín A. Valdemarsdóttir, 23.2.2008 kl. 20:05

3 identicon

Sorry Róslín það kemur ekki til greina að kjósa þau..... Kýs frekar Barða. Vonandi eignast þú trommusett von bráðar annars máttu koma í bílskúrinn minn og spreyta þig.... Kveðja Ragga

Ragga (IP-tala skráð) 23.2.2008 kl. 20:42

4 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Rafn er sonur þinn Ragga.. ég sé það greinilega.. ahahahah..

Ég hef reynt það áður, þorði því samt voða lítið......

Róslín A. Valdemarsdóttir, 23.2.2008 kl. 21:04

5 identicon

Já ég er nú ekki ánægð með þessi úrslit en maður verður bara að sætta sig við þetta Hefði frekar viljað sjá eitthvað annað en barbie og ken fara fyrir okkar hönd en það er bara ég.......... Jæja þá er að drífa sig á næturvaktina svo ég segi góða nótt.....Ragga

Ragga (IP-tala skráð) 23.2.2008 kl. 23:37

6 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Þú ert alveg ótrúleg..
Loksins vann lag sem ég hélt með, það var nú löngu kominn tími til þess!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 23.2.2008 kl. 23:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband