BATMAN

Sit hérna bara við tölvuna eins og vanalega, að hugsa út í það sem ég á eftir að gera, og þarf nauðsynlega að gera. Fletti yfir nokkrar síður á veraldarvefnum og sé aldrei neitt ótrúlega áhugavert. Horfi á Batman hérna í sjónvarpinu, þvílíkt og annað eins sem krökkum dettur í hug að horfa á, og nenna að horfa á þettaFootinMouth
Ætlaði að setja nýjan banner hér, en finnst hann frekar dauðlegur. Þannig að ég hef þennan barasta áframLoL .
Skóladagurinn var nú frekar amalegur, byrjuðum í tölvutíma að læra á Excel, leiðinlegt, fengum að fara fyrr. Eftir frímínútur var Guðmundur Ingi með smá messu. Því að krakkarnir sem fóru í Skólahreysti lentu í öðru sæti hér á Austurlandi. Eftir það fórum við í stærðfræði og fengum að spila þar sem það var svo lítill tími eftir. Engar íþróttir vegna danskennslu hjá Hafnarskóla, tímafreku krakkar maður! Fór með Yrsu út í bakarí og við fengum okkur að borða, danskan var svo eftir hádegi og þurftum að lesa smásögur, og skólinn sem betur fer búinn um 1 leitið. Er búin að sitja og gera ekki neitt frá því, reyni að gera eitthvað af viti en það verður ekkert vit úr því.

Ætla bara að horfa á teiknimyndirnar á stöð 2Grin .
Endilega svarið spurningunni hjá mér, ætla að sjá til hvort ég læsi síðunni eður eigi.

Vonandi svo hef ég það bara gott í kvöld með Rafni mínumInLove

KnúsHeart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Unnar

Af hverju ertu að spá í að læsa síðunni þinni?

Þröstur Unnar, 22.2.2008 kl. 17:40

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég kæri mig ekki um að allir lesi bloggin mín, langar líka mestmegnist að vita hverjir lesa bloggin mín og þeir fá það sem vilja það

Róslín A. Valdemarsdóttir, 22.2.2008 kl. 17:42

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Ok skil það, ef þú vilt ekki að allir lesi.

En ef þú verður með opið blogg þá skaltu ekkert vera að velta þér upp úr því hverjir nákvæmlega eru að heimsækja þig. Þá skaltu bara skrifa fyrir sjálfa þig en ekki aðra.

Þröstur Unnar, 22.2.2008 kl. 17:52

4 identicon

Sammála síðasta ræðumanni

En annars fór ég alveg í aftur í tímann þegar ég var að lesa um skólann hjá þér... Mér fannst alveg æðislegt að vera í Heppu, mjög gaman! En ég hló upphátt þegar ég las um messuna, gott að vita að sumt breytist ekki  

Vonandi að þú hafir það gott.
Kv. frá suðurnesjum
Gugga

Guðbjörg (IP-tala skráð) 23.2.2008 kl. 00:30

5 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Sumt verður að halda í, t.d. eins og þessa fínu sófa sem eru allir að detta í sundur..
Messan er alltaf á sínum stað skal ég segja þér, klappað fyrir og eftir, og svo drifið sig í tíma svo maður er ekki skammaður

Hafðu það gott Gugga mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 23.2.2008 kl. 00:33

6 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Það er erfið ákvörðun Hallgerður, eins og Þröstur Unnar sagði, að mér eigi að vera sama ef ég hef hana opna hverjir skoða hana, og skrifa bara fyrir sjálfa mig.

Svo er ég nú að reyna að hafa einhver áhrif á samfélagið svo ég ætla að hugsa aðeins lengur um þetta

Róslín A. Valdemarsdóttir, 23.2.2008 kl. 12:57

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Næstum því týpískur skóladagur en kvöldið hefur verið rómó það er ég viss um.

Hafðu bara áfram áhrif á samfélagið, það þiggja það allir.
                           Knús á þig snúllan mín
                                    Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 23.2.2008 kl. 13:08

8 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Næstum því já, samt ótrúlega lítið gert .. Sé aldrei tilganginn í því að mæta á föstudögum.....
Kvöldið var svo sannarlega rómó eins og þú orðar það, kúrt bara yfir Bandinu hans Bubba sem mér fannst nú samt sem áður frekar lélegt...

Ég mun örugglega bara halda því áfram

Knús til baka

Róslín A. Valdemarsdóttir, 23.2.2008 kl. 13:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband