11.2.2008 | 18:49
Ómótstæðileg kaka

Er búin að vera frekar þreytt í dag þar sem ég fékk ekki alveg svefninn minn, sofnaði frekar seint sem er bara vont. Eins og frænka mín sagði við mig, það er óhollt fyrir mann að fara að sofa á ókristilegum tíma. Það er nokkuð vel tekið til orða, reyndar líður mér best á kvöldin, er oftast í langbesta skapinu þá. Var einmitt að stríða þessari sömu frænku minni, segja henni að ég ætti afmæli á morgun, en hét samt að það væru 190 dagur í afmælið mitt, og hún spurði nú bara hvort ég væri nokkuð full


En náttúrulega á ég og þið öll afmæli á morgun, verðum öll deginum eldri, og það er afrek þannig séð.
Jæja einn klukkutími og korter í fund og ég ekki alveg ákveðin hvort ég eigi að skella mér eður eigi, ég er ekkert sjarmerandi þegar að komið er að söngnum ástkæra. Reyndar er þetta nú Rocky Horror svo það getur nú ekki verið algjör "horror" að ég fái að vera með

Ætla að finna mér eitthvað sem er gott á bragðið og heitir ekki kaka.
KNÚS

Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Matur og drykkur, Spaugilegt, Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
O mig langar í köku
... Hvenær á að bjóða mér í köku???????? Hafðu það gott að horfa á one tree hill í kvöld......
Ragga (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 19:47
Endilega komdu þegar þú vilt... láttu bara vita á undan þér og þá baka ég köku í snatri
..
Það er það síðasta sem mig langar að gera, að horfa á One tree hill, vill frekar horfa á American Idol
Róslín A. Valdemarsdóttir, 11.2.2008 kl. 20:38
Já, við tökum Rocky Horror með trompi sko! Sé þig nú samt ekki fyrir mér í korsilette og á 24cm háum hælum
En alltaf kemur lífið manni á óvart
hahaha. En sé þig þá á leikæfingu annað kvöld 
hahahaha
En þessi blessaða kaka var ekki alveg að gera sig, ég kenni mömmu þinni um það
K N Ú S
Eva (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 23:21
Ég myndi aldrei vera í korsilettu, allavega ekki bara í því... en kannski háum hælum með æfingunni yrði ég PRO.
hehehe
Mamma eyðilagði kökuna, það er rétt...
Jebb við sjáumst þar án efa
Knús til baka
Róslín A. Valdemarsdóttir, 11.2.2008 kl. 23:23
ohh.. hvað mig langar líka í köku.
Haltu áfram að vera svona dugleg að skrifa :)
Björk Guðna (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 00:51
Haha, þig hefði ekki langað í þessa köku Björk. Hún var glerhörð með alltaf miklu kremi
Eva (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 00:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.