30.1.2008 | 23:03
Biiiingóóó!
Jæja, þá er ég loksins komin heim eftir langan dag. Búin að fara í sturtu og loksins get ég lært undir próf. Erum stelpurnar í bekknum búnar að vera á fullu í dag að undirbúa bingó, var í skólanum frá átta til fimm eða hálf sex! Gekk heim og borðaði langþráðan mat. Reyndi að læra en rakst á bloggfærsluna hennar Millu sem er núna í vinalistanum mínum hérna til vinstri
. Sú bloggfærsla kom mér algjörlega í opna skjöldu, enda ekki alltaf sem er skrifað um mann sjálfan í annarra manna bloggi. Ég þakka svo kærlega fyrir mig Milla!!
Bingóið gekk eins og í sögu, ég byrjaði á að segja tölurnar í nokkrum spilum, söng með minni æðislega fallegu rödd, í míkrófón. Heyrði mig syngja og hélt að þetta væri krakki í 4. bekk! Bara fyndið, sagði m.a. uppáhalds brandarann minn sem ekki margir hlógu að, bara kennararnir
... Tók myndir af krökkunum og svona, mætingin var líka alveg æðisleg. Græddum alveg nóg, að ég held.
En á leiðinni heim í dag þegar ég var að fara heim að borða, var ég elt af strákum í 3-4. bekkjar, og þeir voru að fræða mig um að þeir hefðu fundið dúkku og þið viljið ekki vita framhaldið. Orðaforðinn sem krakkar á þessum aldri eru farnir að læra, guð minn góður!! Svaraði þeim eiginlega ekki fyrr en þeir voru farnir að spyrja hvort ég væri heyrnalaus, þá talaði ég bara við þá, spurði í hvaða bekkjum þeir væru, annar strákurinn var svo óskírmæltur að ég skildi ekki 1/8 af því sem hann sagði greyið. Hann var greinilega eitthvað að drífa sig að tala heyrðist mér. Vonaði svo sannarlega að enginn hafði séð þetta, þar sem að ég þekkti þessa stráka ekki neitt, og ég þoli ekki þegar er hundsað mig, svo ég talaði bara við þá.
Jæja, þið hafið heyrt í mér þessa vikuna, ætla að fylgjast með Opruh, ein af mínum uppáhöldum og læra fyrir samfélagsfræðipróf.....
Knús

Athugasemdir
Haha, ég er búin að heyra þetta mjög oft!!!

Ég tek því bara sem hrós, það er nú líka sagt mig gamla sál, sem er frekar rétt
Róslín A. Valdemarsdóttir, 31.1.2008 kl. 14:56
Blessuð Róslín mín. Kíkti á bloggfærsluna hjá Millu, og þú átt þetta alveg skilið!
En þessir strákar sem eltu þig, voru þeir ekki tveir ? Þá eru þetta ábyggilega sömu og eltu mig og spurðu mig ýmissa ósvífinna spurninga.
Eva (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 15:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.