Björn Ingi hættur

Já, það hef ég heyrt í fréttum og allstaðar glimra blogglínur um þetta mál. Eina sem ég veit um þetta mál er þegar hann var nær gráti í fréttunum. Ég skil ekkert hvað er í gangi, og afhverju ætti fólki ekki að vera sama í hverju maðurinn gengur?
Allavega á Ísland nóg annað um að ræða, ekki endalaust tal um stjórnmálamenn, við vitum öll að flest þeirra hafa nóg milli handanna. Það er meira að gerast á Íslandi, fátækt og allt milli himins og jarðar bara. Ég skil ekki hvað er alltaf verið að fjalla um sama fólkið í fréttum, af hverju að koma ekki af og til með einhverjar fréttir til að hressa upp á fólk?Whistling

Jæja, styttist óðum í að blaðið Heppan fer í prentun og útgáfu, ef prentvélin mun ganga verður gefið út blaðið hugsanlega á morgun. Vonandi leggst það vel í krakkana!

Ég fór áðan út með eldgömlu myndavélina hans pabba, hann keypti nefnilega filmu fyrir mig. Tók tvær myndir, þetta kostar nefnilega peninga!Pouty Aldrei þessu vant, kostar að framkalla myndir, höfum lítið sem ekkert gert það síðustu árin. Ég  bara framkalla þær myndir sem ég vill prenta út og geri það í prentara sem ég fékk frá systkinum föður míns í fermingargjöfWink .

Ætli maður fari ekki að gera eitthvað af viti.

Sæl að sinni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Sumir bara þurfa flíkur til að bæta upp fyrir ýmislegt annað sem á vantar.... aðrir geta mætt í strigapoka og heillað fólk upp úr skónum!

Gangi þér vel með Heppuna!  

Laufey Ólafsdóttir, 25.1.2008 kl. 00:35

2 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Já mikið er ég sammála þér Laufey! fattaði þetta ekki fyrr en þú bentir mér á það..

Annars takk takk!, reyndar átti blaðið að fara í prentun í dag, allt klappað og klárt, en svo var prentvélin ekki alveg upp á sitt besta..

Róslín A. Valdemarsdóttir, 25.1.2008 kl. 14:44

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Tek undir með Laufey, þinn innri maður heillar fólk ekki fötin. Er búin að þakka þér fyrir innlitið, á síðunni minni, mátti samt til að kíkja á þig.
Það er nóg um að ræða á Íslandi stundum festist fólk of lengi í umræðu
sem skiptir minna máli en annað.
Þú talar um að fara að gera eitthvað af viti, það þarf að gera það líka,
en þú ert að gera heilmikið af viti með þínu bloggi og gangi þér vel með blaðið.
                        Knús á þig Róslín AlmaMilla á Húsavík.

P.S. Berðu foreldrum þínum kveðju mína, tjáðu þeim frá mér
       að þeim hafi tekist vel upp.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.1.2008 kl. 09:03

4 identicon

Já, maður er orðinn þreyttur á að heyra um þetta mál í fréttunum, í bloggum og svo var þetta líka í Spaugstofunni. Fannst samt alveg fáránlegt þegar þeir í spaugstofunni gerðu grín af einhverjum kallinum í þessu stjórnmála-drama fyrir að vera á geðlyfjum, vilja þeir ekki líka fara að gera grín af þroskaheftum og langveikum ?
En takk fyrir gærdaginn Róslín mín, og reynum nú að fara að hittast oftar! og Milla á Húsavík, ég er alveg sammála þér, foreldrum Róslínar tókst vel upp með hana

Eva Kristín (IP-tala skráð) 29.1.2008 kl. 14:52

5 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Milla: Takk fyrir, og ég mun svo sannarlega skila kveðjunni Knús til baka!

Eva: Eva, við bara verðum að fara að gera eitthvað í þessu sko!! Annars takk sömuleiðis fyrir gærdaginn

Róslín A. Valdemarsdóttir, 29.1.2008 kl. 17:01

6 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

amma mín heitir Palma Róslín, og ég átti að vera skírð eftir henni, en mannanafnanefndin tók það ekki í mál. Svo úr því kom Róslín Alma í staðinn bara

Róslín A. Valdemarsdóttir, 30.1.2008 kl. 17:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband