Færsluflokkur: Bloggar
25.5.2006 | 21:49
Unnur Birna flaug ekki bara fram fyrir sig!
Eins og flestir vita, datt grey Unnur Birna í gær, og ekki var það fríðnilegt að sjá hvernig! Vorkenndi henni ekkert smá!! Frekar ömurlegt fyrir hana!! Huhumm! Þrífa gólfin betur! En annars var það ekki bara hún sem flaug framfyrir sig, því það gerði ég víst líka! Þetta var einhvernveginn svona:
Lá kylliflöt en fór svo sko að hlæja!! Þetta var einum of fyndið til að vera satt!! En ég tognaði víst í lófanum ég verð að sína ykkur umbúðirnar líka:
Ég er klaufi ársins, það þarf ekki að segja mér það!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.5.2006 | 21:37
KOminn tími á blogg!
Góða kvöldið!
Það er víst kominn tími á blogg, ef maður ætlar að halda þessari síðu uppi.. Það vita flestir að ég hafi verið í Rvk.. farið í afmæli hjá afa mínum sem var áttræður þann 30. apríl. Verið með Rakel og Salóme á laugardeginum.. fáir vita að ég sá Jóa Idol kynni í Garðheimum á laugardagskvöldið. Fór heim til Rúnar Júl á sunnudeginum fyrir afmælið hans afa að æfa ,, Er ég kem heim úr Búðardal" og afmælissönginn..
Já, svo er ég búin að sitja heima í tölvunni afþví ég er búin að vera veik.. með eitthvað " Suðurnesjakvef"... Þannig ég er allveg búin að missa af skólanum síðustu tvo daga og daginn í dag.. og líka búin að missa af fullt af æfingum, sem er ALLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLLS ekki nógu gott!!
Ég ætla að játa eitt.. ég sagðist hafa hnerrað svo fast að ég fékk blóðnasir.. ég held það hafi ekki verið ástæðan.. held að ástæðan sé að ég kýldi mig eiginlega þegar ég flýtti mér að taka upp tittsú og setja fyrir nebbann og kýldi hann víst í leiðinni.. Þið fenguð sannleikann!! Ég skal líka viðurkenna það.. ég er algjör klaufi.. eins og að detta af vegasalti beint á andlitið og fá gat í nefið.. fá járnskoflu í hausinn á sér og fá gat á hausinn af því.. Á Gull og Silfur mótinu, í mitt fyrsta skipti sem ég keppti í marki, missti ég boltann í gegnum klofið þegar ég ætlaði að grípa hann þegar var skotið.. en sem betur fer stoppaði boltinn á línunni.. og ég hljóp og náði í hann á línuna og sagði: HANN FÓR EKKI INN
Hrikalega stolt af sjálfri mér (ég var 7- 8 eða 9 ára!!!) En svo fékk ég ömurlegasta markið á mig sem til er í markmannssögu minni; Ég fékk boltann í derhúfuna, og sá ekki boltann, lagaði derhúfuna, og boltinn fór inn
Eeen allir markmenn, meirað egja margmaðurinn í Man Utd gerir mistök..
Kveðja, Róslín ljón!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.4.2006 | 21:42
Páskadagur
Góðan daginn!
Er búin að borða TVÖ páskaegg Og er svo að fara að horfa á eitthvað á Stöð tvö.. og klára gallaða páskaeggið mitt.. það var sko ÞVÍLÍKT þykkt á hliðinni sem skrautið var þá!!
Hver er sammála mér að Gillzinigger haldi að hann sé eitthvað svaka sexy? HANN ER ÞAÐ SKO ALLLLLS EKKI!!!!!!!!!!!!!!!!!! Ég vil ekki vera leiðinleg, en þetta er sko allveg satt, hann er ekki fallegur!! Hann er vöfðastæltur, en það skiptir engu máli um fegurð.. Fyrst ég er að tala um fræga menn, þá er Einir og Ingó Idol stjörnur eru FALLEGIR!! Biblía Fallega fólksins, má ég gíska, svona uu bara verið að tala um Gillzinigger.. efað hann heldur að hann sé eitthvað meira en við hin, þá skjátlast honum
En ætla ekki að eyða þessu bloggi öllu í hann, en elsku sæta litla Bjarney, vinkona mín á afmæli í dag =D PÁSKADAG TIL HAMINGJU BJARNEY
Mynd af Ingó og afmælisbarninu =D
Já, auðvitað, ég Yrsa og Bjarney fórum að hitta Ingó í gær á víkina =) á eftir að setja myndir frá því, en þær koma seinna =)
Bloggar | Breytt 4.5.2006 kl. 19:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.4.2006 | 19:38
Föstudagurinn langi!
Jæja, ég þurfti að prófa þetta kerfi líka.. Hehe Þetta er sko ekkert smá flott kerfi, myndasíða og allt. Allt frítt =D Snilld!! Ég ætla að reyna að halda þessari síðu uppi, vera dugleg að setja nýjar myndir og svona
En vonandi fylgist einhver með mér, hehe
Ætla að halda áfram að fykta eitthvað í þessu.. Heyrumst..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2006 | 16:24
Fyrsta bloggfærsla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)